flett18.jpg
Arnfirðingur
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Félagið
Bíldudals grænar 2003
Bíldudals grænar 2005
Bíldudals grænar 2007
Bíldudals grænar 2009
Menning
Annað
Aðsendar greinar
Pistlar:
Efni frá lesendum

Fréttir
Minna á skötuveisluna á morgun 18. desember 2009
Skötuveislan hefst stundvíslega kl 13:00 á morgun laugardag. Veislan kostar kr. 2.500 á mann. Yfir 120 hafa nú þegar skráð sig og því orðið fullt.



edius dersleri





Örfá sæti laus 9. desember 2009
Nú eru örfá sæti laus í skötuna þann 19. des. Þeir sem ekki hafa skrifað sig á listann þurfa að hafa hraðar hendur.
Mikil stemning fyrir skötunni 2. desember 2009
Nú var eitthundraðasti gesturinn að skrifa sig á lista skötuveislunnar í Kænunni 19. des. Nú verða þeir sem ekki hafa skráð sig að hafa hraðar hendur því aðeins eru sæti fyrir eitthundrað og tuttugu manns. Þeir sem ekki borða skötu þurfa ekki örvænta því hægt verður að fá gæða saltfisk að vestan. Veislan hefst stundvíslega kl. 13:00. Verðið verður auglýst þegar nær dregur.
Skötuveisla Arnfirðinga í Kænunni 19. des 16. nóvember 2009
Nú er hafinn undirbúningur að skötuveislu Arnfirðinga í Kænunni í Hafnarfirði. Í fyrra mættu 80 karlar í veisluna en í ár er öllum boðið bæði konum og köllum. Veislan byrjar kl. 13:00 og verður boðið uppá ekta skötu með vestfirskum hnoðmör auk þess verður hægt að smakka ýmislegt annað góðgæti úr hafinu. Nefnd er að störfum við undirbúningin og verður ýmislegt skemmtilegt á boðstólnum annað en skötuát. Mikilvægt er að panta sæti því sætafjöldi er takmarkaður. Vinsamlegast pantið sem fyrst hjá Gumma jorusel@internet.is og hjá Gísla gisliagustsson@gmail.com
Hannes Friðriks sjötugur á föstudaginn 4. nóvember 2009
Hannes Stephensen Friðriksson verður sjötugur föstudaginn 6. nóvember.
Að því tilefni fagnar hann tímamótunum með fjölskyldu og vinum í Félagsheimilinu Baldurshaga á afmælisdaginn frá 18-21.
Þeir sem vilja gleðjast með afmælisbarninu eru boðnir velkomnir.
Bíldudalskarlar á Kænunni á laugardaginn 28. október 2009
Bíldudalskarlar hittast á Kænunni í Hafnarfirði á laugardaginn kl. 10:00 - 12.00
Hvetjum menn til að kíkja við og taka létt spjall og kanski kaffibolla.
Bjarni Þór gefur út geisladisk 25. júní 2009
Uppsetning á sviði 24. júní 2009
Bringusund 7 20. júní 2009
Dagurlagasöngvarinn Gísli Ægir Ágústsson gefur út nýjan geisladisk fyrir Bíldudals grænar...
Á Bíldudal er best 20. júní 2009
Hátíðarlagið fyrir Bíldudals grænar... 2009 er nú komið á vefinn.




video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Dagskrá Bíldudals grænna... 2009 17. júní 2009
Dagskrá Bíldudals grænna... 2009 er komin á vefinn.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Fjársjóðir geta leynst víða 16. júní 2009
Laugardaginn 27. júní verður sett upp markaðstjald að venju á Bíldudals grænum...






video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Nýtt hátíðarlag á Bíldudals grænum... 29. maí 2009
Hátíðarnefndin fyrir Arnfirðingahátíðina Bíldudals grænar... 2009 hefur fengið Bílddælinginn Þórarinn Hannesson til að semja nýtt hátíðarlag.








video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Bílddælingar keppa í sjómannalagakeppni 29. maí 2009
Rás 2 og Hátíð hafsins bjóða upp á sjómannalagakeppni í tilefni sjómannadagssins.








video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Bíldudalskarlar hittast á laugardaginn 27. maí 2009
Næstkomandi laugardag hittast Bíldudalskarlar í Kænunni í síðasta sinn á þessum vetri. Nú er um að gera að kíkja við og hitta gamla vini og kunningja og leita frétta af Bíldudals grænum ... o.fl.


Jói Öddu styrkir Skrímslasetrið 25. maí 2009
Jói Öddu sendi inn grein á www.arnfirdingur.is í maí þar sem hann hvetur alla Arnfirðinga og aðra velunnara verkefnisins til þess að styrkja setrið. Jói, sem leggur inn andvirði tópaksdósar í hverjum mánuði, skorar á fleiri að fylgja fordæmi sínu. Fyrir þá sem ekki taka í nefið skal upplýst að dósin kostar um 5-600 krónur.
Grein Jóa er hér
Skrímslasetur myndir

Skrímslin auglýsa eftir myndum 24. maí 2009
Skrímslasetrið auglýsir eftir myndum til þess að nota í margmiðlunarborð setursins. Okkur vantar gamalar myndir úr firðinum af einstaklingum og einnig myndir af fólki við ýmis störf. Hér að neðan .......
Áskorun til bæjarbúa og gesta á Bíldudals grænum.. 19. maí 2009
Í einum grænum...
Bíldælingar nú skreytum við hús í einum grænum fyrir Bíldudals grænar...
Borðar, veifur, fánar,blöðrur,baunir,bananar,gardínur,gleði og grín og eina skeið af hugmyndaflugi þarf til að fegra plássið okkar fyrir hátíðina í lok júní.

Notið tímann vel, sankið að ykkur grænu í næstu kaupstaðarferð, undirbúningshópurinn mun veita viðurkenningu fyrir fallegar skreytingar.

Málum bæinn grænan!

Undirbúningsnefndin
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Síðasta vinnuhelgin í Skrímslasetrið 16. maí 2009
Nú er komið að því. Síðasta vinnuhelgin í Skrímslasetrinu framundan. Helgina 22. -24. maí verður farið í síðustu vinnuhelgina í setrið og er þetta 12. helgin í röðinni. Yfir 80 sjálfboðaliðar hafa tekið þátt í verkefninu frá upphafi og unnið þar yfir 2.500 vinnustundir.
Með í för verða sjónvarpsupptökumenn og tekið verður upp efni í sjónvarpsþátt sem sýndur verður um miðjan júní. Setrið verður síðan opnað um miðjan júní.

video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Vinnuhelgi hjá skrímslunum 29. apríl 2009
Nú um helgina 1. -3. maí verður vinnuhelgi hjá skrímslunum í setrinu. Nú á að mála og undirbúa fyrir uppsetningu á sýningu. Allir sem vilja leggja verkefninu lið eru velkomnir.


Bíldudalskarlar hittast á laugardaginn 23. apríl 2009
Nú er hittingur hjá Bíldudalskörlum á laugardaginn. Hittumst í Kænunni í Hafnarfirði kl. 10:00 - 12:00. Allir velkomnir.
Breyting á eignarhaldi Gamla skóla 20. apríl 2009
Fyrir dyrum stendur breyting á eignarhaldi Gamla skóla á Bíldudal.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Unnið við Skrímslasetur á Bíldudal 14. apríl 2009
Undanfarnar helgar hefur verið unnið af kappi við að byggja upp Skrímslasetur á Bíldudal.
Bíldudalskarlar 27. mars 2009
Nú er mæting í Kænunni á morgun kl. 10:00. Létt spjall og rjúkandi kaffi að hætti hússins.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir

Bíldudalskallar á Kænunni á laugardaginn 25. febrúar 2009
Bíldudalskallar munið kaffið á Kænunni á laugardaginn milli 10 og 12.


Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar... 2009 24. febrúar 2009
Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar… er nú haldin í fjórða sinn í sumar þann 26. júní til 28. júní á Bíldudal.
Undirbúningshópur hefur þegar hafið störf við skipulagningu hátíðarinnar og gerir ráð fyrir að uppsetning dagskrárliða verði að mestu með hefðbundnu sniði, þó alltaf sé um einhverjar áherslubreytingar að ræða milli hátíða.
Hátíðin ......
Harpan ómar-Styrktartónleikar fyrir tónlistarsafnið Melódíur minninganna. 20. febrúar 2009
Föstudagskvöldið 27. febrúar n.k. verða haldnir styrktartónleikar fyrir tónlistarsafnið Melódíur minninganna. Tónleikarnir fara fram í FÍH salnum Rauðagerði 27, Reykjavík og
hefjast stundvíslega kl. 21:00. Meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram eru:
Skrímslasetur - vinnudagur 3. febrúar 2009
Nú á laugardaginn verður vinnudagur í Skrímslasetrinu. Allir sem áhuga hafa á að leggja verkefninu lið eru velkomnir. Nú er um að gera að taka á því með skrímslunum og skella sér svo á blótið.
Sólarkaffi Arnfirðinga 3. febrúar 2009
Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið í Félagsheimili Seltjarnaness, Suðurströnd /við Gróttuheimilið, sunnudaginn 15. febrúar 2009.
Kaffið hefst kl. 15:00 og verður að vanda boðið uppá rjúkandi sólarpönnukökur og annað góðgæti. Nú er um að gera að skella sér á sólarkaffið og eiga notalega stund með vinum og félögum.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 og frítt fyrir 12 ára og yngri.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Bíldudalskarlar hittast á laugardaginn 27. janúar 2009
Nú er komið að fyrsta kaffinu hjá Bíldudalskörlum á nýju ári. Hist verður í Kænunni í Hafnarfirði kl
Þorrablótið á Bíldudal 7. febrúar 26. janúar 2009
Þorrablót Slysavarnadeildar kvenna Bíldudal verður haldið laugardaginn 7. febrúar 2009 í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 20:00 en skemmtunin hefst kl. 20:30. Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð er 5000.- kr.

Hin margrómuðu skemmtiatriði verða á sínum stað og stórsveitin Green Beans, mun sjá um að dansinn duni frameftir nóttu.

Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga 14. janúar 2009
Þorrablót brottfluttra íbúa Patreksfjarðar og Rauðasands verður haldið 31. janúar í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni í Reykjavík. Öllum brottfluttum íbúum v-Barðastrandarsýslu er boðið á blótið.
Auglýsing

Innsetning sóknarprests 11. janúar 2009
Sunnudaginn 18. janúar verður sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir sett inn í embætti sóknarprests Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis.
Prests- og djáknavígsla í Dómkirkjunni 6. janúar 2009
Prests- og djáknavígsla fór fram í Dómkirkjunni síðastliðinn sunnudag.
Bíldudalskarlar fjölmenntu í skötuveislu 6. janúar 2009
60 Bíldudalskarlar hittust á Kænunni í Hafnarfirði þann 20. desember síðastliðinn til þess að borða saman skötu. Skatan var vel kæst og góð og létt var yfir mannskapnum. Tríóið Höfrungur...

Ný vestfirsk vara “Aðalbláberja sulta” 19. desember 2008
Komin er á markaðinn vestfirsk “Aðalbláberja sulta”löguð úr villtum íslenskum aðalbláberjum úr Arnarfirði. Berin eru tínd af lífrænt vottuðum heiðum Arnarfjarðar, blönduð lífrænum sykri. Aðalbláberja sultan er því lífræna afurð þó stimpillinn sé ekki kominn á enn, en hann kemur.kral oyun
Nýr prestur á Bíldudal 18. desember 2008
Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall hefur ráðið nýjan prest en það er Ásta Ingibjörg Pétursdóttir. Ásta er eiginkona Helga Hjálmtýssonar og munu þau hjón flytjast vestur ásamt börnum sínum og setjast að á Bíldudal. Við óskum Ástu til hamingju með starfið og velfarnaðar í framtíðinni.kral oyun
Góðgæti í skóinn - frítt lag 16. desember 2008
Tríóið Höfrungur hefur gefið út jóladiskinn 308 km í jól en diskinn er hægt að fá hjá Gísla Ægi s. 820 8358. Höfrungur gefur hér út á vefnum eitt frítt lag sem notendur geta hlaðið niður hjá sér.

kral oyun
Skötuveislan í Kænunni 14. desember 2008
Nú eru yfir fimmtíu búnir að skrá sig í skötuna á laugardaginn og þeir sem ekki hafa skráð sig geta haft samband við Gumma Bjarna í síma 575 2360 eða senda póst á arnfirdingur@arnfirdingur.is
kral oyun

Facon kom saman í örmynd 12. desember 2008
Hljómsveitin Facon frá Bíldudal kom saman í örmynd á vestfirskri bókakynningu á veitingahúsinu Catalinu í Kópavogi á miðvikudag. Pétur Bjarnason í Facon segir þrjá úr upprunalegu hljómsveitinni hafa spilað á bókakynningunni. „Hjörtur Guðfinnsson, hljómborðsleikari og einn af stofnendum Facon, Jón Kr. Ólafsson, söngvari og ég sjálfur á harmonikku vorum þeir sem voru úr Facon.

kral oyun
Hópur Bílddælinga í hljóðveri 11. desember 2008
Hópur Bílddælinga hefur undanfarið dvalið í upptökuveri við upptöku á hljómdiski sem koma á út fyrir jólin. Þarna eru á ferð hið landskunna tríó Höfrungur ásamt aðstoðarkokkum. Það verður spennandi að heyra hvað innihaldið verður á diskinum og aldrei að vita nema jólalagið í ár sé þar að finna.

kral oyun
Jólatónleikar og opið hús 11. desember 2008
Jólatónleikar og opið hús.
Miðvikudagur 10. desember nk. kl. 18:00
Jólatónleikar í Birkimelsskóla.
Fimmtudagur 11. desember nk. kl. 18:00
Jólatónleikar í Bíldudalsskóla.
Þriðjudagur 16. desember nk. kl. 15:00
Lokaæfing í Félagsh. Patreksfjarðar
Miðvikudagur 17. desember nk. kl. 18.00
Jólatónleikar í Félagsh. Patreksfjarðar

Fimmtudagur 18. desember nk. kl. 15.00 – 18.00
vreður opið hús í Tónlistarskólanum á Patreksfirði.
Foreldrar og …

kral oyun
Vestfirsk bókakynning 10. desember 2008
Vestfirðingar, brottfluttir og aðrir fjarri heimabyggð, boða til bókakynningar í Veitingahúsinu Catalinu, Hamraborg 11 í Kópavogi, miðvikudaginn 10. desember n.k. kl. 20:30. Þar verða kynntar og lesið úr þremur af þeim ellefu bókum sem Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út fyrir þessi jól.
kral oyun
Þjóðhátíðarsjóður styrkir endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal 1. desember 2008
Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði vegna ársins 2009. Alls bárust 161 umsókn um styrki að fjárhæð 229 milljónir. Úthlutað var að þessu sinni 56 styrkjum, samtals að fjárhæð 30,4 milljónir. Félag um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal hlaut hæsta styrkinn, 2 milljónir króna.

Þá fengu Stofnun Árna Magnússonar, orðfræðisvið, og Ljósmyndasafn Íslands, …
kral oyun
Yfir þrjátíu eru búnir að skrá sig í skötuna 30. nóvember 2008
Eins og í fyrra þá ætla Bíldudalskarlar að hittast í Kænunni í Hafnarfirði og snæða saman skötu laugardaginn 20. des. Nú þegar hafa yfir 30 manns skráð sig þannig að búast má við met þátttöku. Það er mikilvægt að menn skrái sig svo hægt sé að gera ráðstafanir útfrá fjölda. Hægt er að skrá sig í síma 575 2360 eða senda póst á arnfirdingur@arnfirdingur.is
Allir velkomnir
kral oyun

Kópur möndlar við jólatré 29. nóvember 2008
Það vakti forvitni að sjá Björgunarsveitina Kóp uppi á Tungu. Hvurju var verið að bjarga? Frá jólakettinum sögðu þessir rauðklæddu skegglausu sveinar - það koma nefnilega engin jól ef ekki er jólatré á hól, torgi eða tanga. Og ef maður hefur ekki …

kral oyun
Karlakórinn Vestri heldur tónleika 29. nóvember 2008
Það er mikil tilhlökkun á meðal kórfélaga í Karlakórnum Vestra þar sem þeir koma nú fyrst fram obinberlega eftir að kórinn var stofnaður 1. maí sl. á Bjargtöngum.
Á tónleikunum verður í anda árstíðarinnar flutt jóladagskrá. Einnig verður boðið upp á einsöng, dúett og kvartett. Efnisskráin er afar fjölbreytt. Miðaverð er 1000 krónur.
Sunnudaginn 30. nóvember nk. verða fyrstu …
kral oyun

Bíldudalskarlar 27. nóvember 2008
Næst komandi laugardag hittast Bíldudalskarlar á Kænunni í Hafnarfirði kl. 10:00. Allir velkomnir.

Ferðamál til framtíðar, málþing um ferðamál í Vesturbyggð 20. nóvember 2008
Málþingið Ferðamál til framtíðar verður haldið í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal laugardaginn 22. nóvember 2008.
Málþingið er öllum opið. Allir þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu á svæðinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum þingsins.
Nánari upplýsingar má finna á www.vesturbyggd.is og …


Handverkssala á Skriðulandi helgina 21.-23. nóv 19. nóvember 2008
Leiðin Bíldudalur - Reykjavík er 384 í kílómetrum talið, lengri í holum talið og jafnlangt til baka. Um það bil þegar leiðin er hálfnuð og Gilsfjörður að baki og kaffilöngun farin að gera vart við sig, blasir við vegfarendum Skriðuland, gamalt kaupfélag, nú vegaveitingastaður og verslun. Staður …


Bíldudalskarlar hittast á Kænunni 13. nóvember 2008
Síðasta laugardag í hverjum mánuði hittast brottfluttir Bílddælingar á Kænunni í Hafnarfirði fá sér kaffi og spjalla. Allir eru velkomnir í þennan hóp en næst verður hist laugardaginn 29. nóvember kl. 10:00. Í desember er síðan ætlunin að hittast þann 20. og borða saman skötu. Til þess að fá borðpláss er mikilvægt að panta og gera menn það hjá Gumma Bjarna í síma 575 2360.

Myndarlegir skrímslakallar 3. nóvember 2008
Um miðan október var farin helgarvinnuferð í Skrímslasetrið á Bíldudal. Fjölmennur hópur sjálfboðaliða, um 30 manns, tóku þátt í verkefni helgarinnar.
Kópur selur neyðarkall í Reykjavík 1. nóvember 2008
Björgunarsveitin Kópur Bíldudal mun eins og allar björgunarsveitir á landinu selja neyðarkall nú um helgina. Sveitin mun selja á höfuðborgarsvæðinu og verða sölumenn frá þeim staðsettir við Hagkaup í Skeifunni og Bónus í Skútuvogi. Nú styrkjum við frábært starf björgunarsveitanna og kaupum af þeim neyðarkall.

Lyklar týndir 29. október 2008
Í síðustu vinnuferð skrímslanna týndust bíllyklar (Skoda). Ef einhver finnur þá þá vinsamlegast hafið samband í síma 894 8503 (Valdimar).



Bíldudalskarlar hittast á ný 21. október 2008
Bíldudalskarlar ætla að hittast á laugardaginn 25. október kl. 10:00 í Kænunni í Hafnarfirði
porno izle


Skrímslin með vinnuhelgi 15. október 2008
Nú um helgina verður vinnuhelgi í Skrímslasetrinu. Allir sem áhuga hafa á að leggja verkefninu lið eru velkomnir. Unnið verður á laugardaginn og fram á hádegi á sunnudag. Heyrst hefur að ýmislegt óvænnt muni gerast þessa helgi og alltaf fjölgar í hópnum.


Strandsiglingar hafnar 10. október 2008
Það má segja nýstárlegt að sjá strandsiglingaskip við kajann á Bíldudal, en Eimskip hefur hafið strandsiglingar vestur á firði, til Ísafjarðar og Bíldudals. Um er að ræða tilraunaverkefni Eimskips sem stendur til áramóta. Fyrsta ferðin var farin til Ísafjarðar í síðasta mánuði en síðan bættist Bíldudalur við eftir að …


Endurbætur hafnar á gömlu smiðjunni á Bíldudal 5. október 2008
Gamla smiðjan á Bíldudal hefur munað tímana tvenna enda orðin öldruð. Hún var byggð 1894 og því 114 ára. Það var Pétur Thorsteinsson sem lét byggja smiðjuna og taldist hún ein fullkomnasta vélsmiðja landsins á sínum tíma. Eftir margra ára nag af tímans tönn á nú færa smiðjuna til betra horfs.
Byrjað var á …

Allt rólegt á yfirborðinu 2. október 2008
Á lögbundnum frídegi, sunnnudegi, stóð hugur til spásseringar. Að hitta mann og annan. Skilja tilgang lífsins. En það var eins og allir hefðu ákveðið annað en ég og voru flestir fjarri arnfránum augum mínum.
Ég fór því að hitta fjallið vin minn. Það fer ekki langt …


Bannað að leggja veg um Teigskóg 27. september 2008
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð umhverfisráðherra um vegagerð um Teigskóg í Reykhólasveit. Vegagerðinni var ennfremur gert að greiða málskostnað stefnda. Málið var höfðað af Náttúruverndarsamtökum Íslands, Fuglaverndarfélagi Íslands og þremur einstaklingum gegn Vegagerðinni.
Þess var krafist …


Úrskurður sagður áfall 27. september 2008
Dómsúrskurður í gær, sem hafnaði nýrri veglínu Vestfjarðavegar um þrjá firði, er feiknarlegt áfall, að mati forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar, sem hvetur til áfrýjunar. Talsmaður landeigenda mælist hins vegar til þess að hætt verði við vegagerðina.
Vegagerðin hugðist bjóða verkið út um næstu áramót en þetta er lengsti og erfiðasti kaflinn á leiðinni milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur sem …


Björgunarsveitin Kópur leitar til brottfluttra Arnfirðinga 11. september 2008
Ágætu brottfluttu Arnfirðingar.
Við hjá Björgunarsveitinni Kóp á Bíldudal leitum að auglýsingakaupendum í árlegt dagatal sveitarinnar 2009. Ástæðan fyrir því að við leitum til ykkar er sú að fjáröflunarsvæði okkar hefur rýrnað og rýrnað undanfarin ár/áratug, fólki og fyrirtækjum fækkað...
Skrímslasetur semur við Gagarín 7. september 2008
Skrímslasetrið hefur skrifað undir samning við Hönnunarstofuna Gagarín um hönnun, uppsetningu og tæknivinnslu sýningar í Skrímslasetri. Verkefnið er margþætt...
Skrímsli við Skrímslasetrið 1. september 2008
Það varð uppi fótur og fit þegar litríkt sæskrímsli birtist fyrir utan Skrímslasetrið á Bíldudal um síðustu helgi. Ekki vakti þó skrímslið ótta heldur mikla lukku hjá krökkunum. Þarna var verið að prófa...
Skrímsli á leið vestur 18. ágúst 2008
Nú eru skrímslin vöknuð af sumardvala og stefna vestur í vinnuferð. Nú á að setja á fulla ferð uppbyggingu setursins innandyra. Búið er að semja við fyrirtæki sem kemur í haust og setur upp sýninguna og verður húsnæðið að vera tilbúið þá. Skrímslamenn óska því eftir sjálfboðaliðum í þessa ferð sem farin verður helgina 29. ágúst. Það verður engin svikinn af því að koma með í skrímslaferð. Áhugasamir snúi sér til Gísla í síma 820 8358
Sandra Dögg með ljósmyndasýningu í ráðhúsinu 30. maí 2008
Arnfirðingurinn Sandra Dögg (dóttir Jóns og Höllu í Hvestu) er þátttakandi í samsýningu sem nú stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þar kennir ýmissa grasa, ljósmyndarar á öllum aldri og með ólíkar áherslur.
Flestar myndirnar á sýningunni eru einnig til sölu og er hún opin daglega á opnunartíma ráðhússins en síðasti sýningardagur er á sunnudag, 1. júní.
Myndagallerý Söndru: www.flickr.com/timbersmith


Leiksýning í Edinborgarhúsinu á Bíldudal í boði Hafstrauma 28. maí 2008
Lirfur er nýtt, íslenskt leikrit eftir Víði Guðmundsson og er þetta fyrsta verk höfundar. Leikendur eru Víðir Guðmundsson og Orri Huginn Ágústsson. Sýningin hefst kl:20 fimmtudaginn 29. maí og aðgangseyrir er enginn. Leikritið var æft og frumsýnt í Borgarleikhúsinu þar sem það var sýnt á lokuðum sýningum í mánuði unga fólksins.Verkið segir frá tveimur mönnum sem eru fastir saman á...

Vegna fréttar um niðurrif húsa á útplássinu 27. maí 2008
Hér á vef Arnfirðings í gær var settur hlekkur inn á vef sveitarfélagsins sem sýnir fyrirhugaða eyðileggingu húsa í útplássinu á Bíldudal. Sú tenging er mjög sein og telja því ýmsir að sá hlekkur sé óvirkur. Hann er það ekki, en mjög seinvirkur. Verða því settar hér inn helstu myndir af honum.


Niðurbrot á ríflega aldargömlum húsum á Bíldudal! 26. maí 2008
Mikið hefur verið rætt um verndun húsa á Íslandi undanfarin misseri. Ekki hvað síst í Reykjavík. Skemmst er að minnast uppkaupa Reykjavíkurborgar á húsunum að Lagavegi 4 og 6 fyrir tæpar sexhundruð milljónir. Húsafriðunarnefnd taldi húsin þröngt á litið, ekki hafa varðveislugildi. Hins vegar er það götumyndin sem m.a. geymir sögu gömlu Reykjavíkur hafa varðveislugildi, að mati …


Átt þú málverk eftir Óskar Magnússon? 10. maí 2008
Laugardaginn 31. maí opnar Gallerie Dynjandi að Dalbraut 1, Bíldudal. Opnunarsýningin verður tileinkuð Óskari Magnússyni listamanni á Bíldudal og verður um yfirlitssýningu að ræða. Þeir sem eiga málverk eftir Óskar og vilja góðfúslega lána þau á sýninguna...
Brynjar BA 128 með 6,5 tonn af rækju 2. maí 2008
Björn Magnússon skipstjóri á Brynjari BA 128 var brosmildur þegar hann kom í land í gærkvöldi með 6,5 tonn af Arnarfjarðarrækju. Var þetta stærsti túr skipstjórans hingað til. Svo mikill var aflinn að...
Vinnuferð í Skrímslasetur 17. apríl 2008
Um síðustu helgi var farin fimmta vinnuferðin í Skrímslasetrið. Unnið var við að einangra loft í móttöku, smíða milliveggi og snyrta til utandyra. Eins og í fyrri vinnuferðum var fjöldi sjálfboðaliða með í för og góður hópur heimamanna tók einnig til hendinni. Alls komu um 24 einstaklingar á einhvern hátt að verki helgarinnar.
Stjörnukvöld Súlnasal Hótel sögu 2. og 3. maí 16. apríl 2008
Allar helstu stórstjörnur landsins munu koma saman og halda stórtónleika til söfnunar fyrir Tónlistasafn Jóns Kr. Ólafssonar í Súlnasal Hótel Sögu 2. og 3. maí nk. Sjá auglýsingu.
Ævintýraheimur Arnarfjarðar í frumkvöðlakeppni 2. apríl 2008
Bílddælingurinn Birna Friðbjört S. Hannesdóttir er komin í átján liða úrslit frumkvöðlakeppni Innovit. Markmið keppninnar er að gefa háskólamenntuðum frumkvöðlum tækifæri að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar markvissar áætlanir, sem miða að stofnun fyrirtækja. Hugmynd Birnu er...


Skrímslin á leið vestur 1. apríl 2008
Helgina 11.- 13. apríl stefna skrímslin vestur í vinnuferð. Mikill fjöldi skrímsla af suðurlandi hafa ákveðið að flykkjast vestur á skrímslaslóðir til þess að taka þátt í uppbyggingu skrímslasetursins. Ljóst er að þessa helgi mun ýmislegt undarlegt gerast á Bíldudal þegar þessi fríði flokkur ryðst inn í friðsælan fjörðinn með bægslagangi og hamarhöggum. Heimaskrímslin er hvött til þess að sameinast vinum sínum að sunnan og taka þátt í atinu því reikna má með að laugardagskvöldið verði kyngimagnað að hætti skrímslanna. Af þessu má enginn missa.
Öll skrímsli eru velkomin í hópinn sérstaklega skeljaskrímsli.
Þeir sem vilja vera með hafi samband við Gísla fjörulalla í síma 899 9938.
dizi izle
video izle
video

Bíldudalskarlar - Kaffispjall á Kænunni á laugardaginn 25. mars 2008
Á laugardaginn milli 10 og 12 verður kaffi hjá Bíldudalsköllunum á Kænuni í Hafarfirði. Milli tuttugu og þrjátíu manns hafa verið að mæta í kaffið að undanförnu og alltaf einhver ný andlit láta sjá sig í hvert sinn. Hvernig væri að mæta og heilsa upp á gamla kunningja. Allir velkomnir.


Skrímslasetur 23. mars 2008
Skrímslakarlarnir fimm, þeir Arnar, Gísli, Kári, Maggi og Valdimar skruppu í vinnuferð til Bíldudals um páskana. Unnið var við að koma upp lofti og einangrun í það rými sem hýsa mun m.a. eldhús setursins og gekk verkið vel. Nú er búið að...
Árlegt grímuball Leikfélagsins Baldurs 13. mars 2008
Aðfaranótt 22. mars 2008 verður árlegt grímuball leikfélagsins Baldurs haldið í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 00.00 og mun hljómsveitin green beans spila fyrir dansi. Veglegir viningar verða í boði og má þar nefna flug fram og til baka með flugfélaginu Ernir og vinning frá Sæferðum.
Aðgangseyrir verður:
2000 kr. fyrir ógrímuklædda
1500 kr. fyrir grímuklædda

Fólk er hvatt til að mæta tímanlega fyrir verðlaunaafhendinguna sem verður kl. 01:30.
Aldurstakmark er 18 ár.




Samtök fyrir bættu atvinnu- og mannlífi á Vestfjörðum 7. mars 2008
Nú hafa bloggarar á bloggi mbl.is tekið höndum saman og ætla að stofa samtök sem þau skammstafa BBV-samtökin. Þau ætla að berjast fyrir atvinnu- og mannlífi á Vestförðum. Stöðva væntanlega olíuhreinsistöð og eru með margar hugmyndir til að auka störf. Þar sem samtökin hafa ekki verið formlega stofnuð er þetta núna á kennitölu Jakobs Kristinssonar í Sandgerð, það mun fljótlega verða opnuð heimasíða.
Elfar Logi tilnefndur til menningarverðlauna DV 2. mars 2008
Bílddælingurinn Elfar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði hefur verið tilnefndur til menningarverðlauna DV. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir einleikjahátíðina Act Alone. Í tilnefningunni segir: „Einleikjahátíðin Act Alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin á Ísafirði síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar.

Vel mætt á kynningarfund um olíuhreinsistöð 19. febrúar 2008
Um 150 manns mættu á kynningarfund um fyrirhugaða Olíuhreinsistöð við Arnafjörðinn. Hilmar Foss hélt þar framsögu en skemmst er frá því að segja að mikill áhugi er hjá íbúum svæðisins á þessari framkvæmd. Um 300 milljarða kostar að reisa slíka stöð og er gert ráð fyrir því að ársveltan sé svipuð. Ekki kom fram í máli Hilmars hvenær …

Sólarkaffið í dag 17. febrúar 2008
Sólarkaffi Arnfirðingafélagsins verður haldið í dag kl. 15:00 í húsi Ferðafélags Íslands í Mörkinni.
Breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar - Bld 15. febrúar 2008
TILLAGA TIL BREYTINGAR Á AÐALSKIPULAGI VESTURBYGGÐAR
Sveitarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 19. desember 2007 að auglýsa skv 21. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar.
Breytingin tengist snjóflóðavörnum á Bíldudal þar sem byggður verður leiðigarður og snjóflóðarenna.
Tillögur að breytingum á aðalskipulagi eru þessar: Opið svæði til sérstakra nota Ú9 stækkar að Lönguhlíð og …


LEIÐRÉTTING vegna aukaferðar Baldurs 14. febrúar 2008
Sá miskilningur varð varðandi aukaferðar Baldurs 15. febr. nk. að um ranga dagsetningu var að ræða. Aukaferðin verður farin 7. mars nk. en þá fer hópur grunnskólanema á hið árlega „Samfés“. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Aukaferðin verður auglýst þegar nær dregur.


Aukaferð með ferjunni Baldri 14. febrúar 2008
Vakin er athygli á því að ferjan Baldur fer tvær ferðir föstudaginn 15. febrúar.
Ferðaáætlunin er eftirfarandi:


Frá Stykkishólmi kl 09:00 og aftur kl. 15:00.
Frá Brjánslæk kl 12:00 og aftur kl. 18:00.

Málþing um stóriðju á Vestfjörðum 13. febrúar 2008
Fjórðungssamband Vestfirðinga gengst fyrir málþingi um stóriðnað á Vestfjörðum í lok mánaðarins. Verður málþingið haldið á Bíldudal laugardaginn 23. febrúar og sama málþingið, með sömu fyrirlesurum, verður svo haldið á ísafirði daginn eftir.
Fyrirlesarar koma frá Umhverfisstofnun, …


Kynningarfundur um hugsanlega olíuhreinsistöð á Vestfjörðum 13. febrúar 2008
Atvinnumálanefndir Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar boða sameiginlega til almenns kynningar- og upplýsingafundar um mögulega olíuhreinsistöð í Hvestudal í Arnarfirði.
Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Patreksfirði mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 20:30.
Hilmar F. Foss framkvæmdastjóri Íslensks hátækniiðnaðar ehf. mun vera með framsögu um olíuhreinsitöðvar og svarar fyrirspurnum. …


Einnar aldar saga, - byggðarmenning í hættu? 11. febrúar 2008
Í pistli sínum á vef þessum birtir Jörundur Garðarsson áhyggjur sínar af því að elsti hluti byggðar á Bíldudal, um og yfir aldar gamall, verði fyrir menningartjóni þegar hluti þess svæðis verður „ruddur“ fyrir snjóflóðavarnargarð. Þarna er um að ræða mjög heilstæða mynd af því hvernig Bíldudalur …


Sólarkaffi Arnfirðinga 17. febrúar 6. febrúar 2008
Hið árlega Sólarkaffi Arnfirðunga verður haldið sunnudaginn 17. febrúar í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 og hefst kl. 15.00. Girnilegt kökuhlaðborð og nýbakaðar pönnukökur. Miðaverð 1000 kr. frítt fyrir 12 ára og yngri.

Mikil skráning á þorrablótið 5. febrúar 2008
Það stefnir í mjög góða þátttöku á þorrablótinu. Í samtali við Ásdísi Snót, formann slysavarnardeildarinnar, þá er vel á annað hundrað manns komnir á listann en síðustu forvöð eru að skrá sig því listar verða teknir niður á morgun. Eins og alþjóð veit þá eru það hinir landsfrægu Farfuglar sem leika fyrir dansi en ball með þeim svíkur ekki. Margir brottfluttir munu ætla að koma og má reikna með mörgum í Baldri á föstudaginn en Sæferðir veita 40% afslátt fyrir þorrablótsgesti.


Þorrablót á Bíldudal 31. janúar 2008
Þorrablót Slysavarnadeildar kvenna Bíldudal verður haldið laugardaginn 9. febrúar 2008 í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 20:00 en skemmtunin hefst kl. 20:30. Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð er 5000.- kr.

Hin margrómuðu skemmtiatriði verða á sínum stað og stórsveitin Farfuglarnir, mun sjá um að dansinn duni frameftir nóttu.

Perlufiskur fær Bíldudalskvótann 29. janúar 2008
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur ákveðið að Perlufiskur ehf á Patreksfirði fái byggðakvótann sem eyrnamerktur var Bíldudal. Samtals fær fyrirtækið 239 þorskígildistonn til vinnslu og uppbyggingar atvinnulífs á Bíldudal.
Fjórir aðilar höfðu sótt um að fá byggðakvótann sem úthlutað hafði verið til fiskvinnslunnar Stapa á Bíldudal, en hún hætti starfsemi í haust.

Golfarar á Patró undirbúa sumarið í Bröttuhlíð 20. janúar 2008
Frá því var sagt á Tíðis að golfspilarar og þeir sem að hafi áhuga á golfi, hafi nú ástæðu til að gleðjsat. Sunnudaginn 20. janúar mun Glofklúbbur Patreksfjarðar hefja æfingar í Íþróttamiðstöðinni Bröttuhlíð. Þar verður hægt að æfa sveifluna og slá bolta í net. Golfarar eru beðnir um að taka kylfurnar sínar með en þeir sem eru byrjendur og vilja fá að prófa og fikra sig …

Skroppið vestur 13. janúar 2008
Það var skroppið vestur, gengið um í húmi morguns, komið við á stöku stað.
Þar var ég gestur með auga úr gleri, og stafrænt var vistað sem upplifun gaf.
Sjóræningjar í startholunum 11. janúar 2008
Fréttamaður Tíðis kom við í smiðjunni á Vatneyri í vikunni og náði tali af Ólafi Engilbertssyni sýningahönnuði og Öldu Davíðsdóttur yfirsjóræningja. Ólafur var kominn vestur til að skoða húsið og mun í framhaldinu hefjast handa við hönnun sýningarinnar sem sett verður upp á næstunni. Það var hugur í þeim og tjáðu þau fréttamanni að nú …


Aldrei fór ég suður hreppti Eyrarrósina 10. janúar 2008
Aldrei fór ég suður – Rokkhátíð alþýðunnar fékk Eyrarrósina, sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Eyrarósin var afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Rúnar Óli Karlsson, einn forsprakka rokkhátíðarinnar, var að vonum ánægður en hann …

Arna Sigríður Vestfirðingur ársins 10. janúar 2008
Vestfirðingur ársins 2007 samkvæmt vali lesenda fréttavefjarins bb.is er Arna Sigríður Albertsdóttir, 17 ára nemi við Menntaskólann á Ísafirði, sem slasaðist alvarlega í skíðaslysi í Geilo í Noregi 30. desember 2006. Hún fékk nær 25% greiddra atkvæða. Arna Sigríður, sem lamaðist fyrir neðan mitti, hefur sýnt mikla þrautseigju, jákvæðni og styrk þrátt fyrir að vera bundin við hjólastól. „Hún er góð fyrirmynd og …

Foreldrafélag Bíldudalsskóla gefur út DVD 9. janúar 2008
Foreldrafélag Bíldudalsskóla hefur gefið út á DVD, ýmislegt efni frá Bíldudalsskóla. Safnið samanstendur af 17 diskum og spannar tímabilið frá árinu 1986 og fram til ársins 2006. …







Olíuhreinsistöð í alþjóðlegri skýrslu 3. janúar 2008
Ísland er á lista alþjóðlegs fagfyrirtækis um olíuhreinsistöðvar, þar sem fram koma áform Íslensks hátækniiðnaðar og Katamag-Nafta, að reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Fyrirtækið Hydro Carbon publishing Company, með heimilisfang í Ameríku, virðist vera fagfyrirtæki sem safnar upplýsingum um olíuhreinsistöðvar um víða veröld og er með heimasíðu á netinu. Í upphafi ársins 2007 voru 102 …


Hlúir nú að sjómönnum og bændum jöfnum höndum 3. janúar 2008
Nú um áramót breyttist starfsvettvangur Bolvíkingsins Einars Kristins Guðfinnssonar. Fyrir áramót var hann ráðherra tveggja ráðuneyta, sjávarútvegs- og landbúnaðar. Nú hafa þau verið sameinuð í eitt ráðuneyti og heitir það Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Þannig mun Einar Kristinn nú hlúa að, með meiri yfirsýn yfir þessa tvo málaflokka á skrifstofu hins nýja embættis að Skúlagötu 4.

Öflugri Vestfirðir með olíuhreinsistöð í Hvestu fremur en Hólum/Söndum 2. janúar 2008
Á hvorum staðnum sem valinn yrði undir olíuhreinstöð er augljóst að aðflutningur á fólki yrði óhjákvæmilegur og allmikill. Því eins og það er orðað í skýrslu Háskólans á Akureyri að „þegar tekið sé tillit til fjarlægðar frá vinnustað komi í ljós að vinnusóknaraðlagaður vinnumarkaður sé 150 ársverk fyrir Hvestu, en 300 …


Úthlutun Jöfnunarsjóðs á Vestfjörðum 2. janúar 2008
Ísafjarðarbær fær tæpar 187 milljónir króna úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næsta ári. Sveitarfélagið Skagafjörður fær langmest allra sveitarfélaga eða 235 milljónir króna.
Í fyrra fékk ísafjarðarbær næstmest en nú er hann í 3. sæti á eftir Fljótsdalshéraði, sem fær tæpar 200 milljónir.
Vesturbyggð fær …

2. janúar 2008





Talsverð fækkun í þremur stærstu sveitarfélögunum á Vestfjörðum 28. desember 2007
Talsverð fækkun íbúa hefur verið í þremur stærstu sveitarfélögunum á Vestfjörðum síðasta áratuginn samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Íbúar Ísafjarðarbæjar voru 3.963 þann 1. desember síðastliðinn og hafði þá fækkað um 10% frá árinu 1997 þegar þeir voru 4.395 talsins. Íbúum í Bolungarvík fækkaði á sama tímabili um liðlega 17%, voru 1.094 fyrir áratug en 904 í upphafi mánaðarins. Í Vestur …


Hólar/Sandar dýrari kostur en Hvesta? 28. desember 2007
Hvað þarf til að lokka starfsmann búsettann á Ísafirði til að vinna í olíuhreinsistöð sem staðsett væri að Hólum/Söndum í Dýrafirði? Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur reiknað út að það þyrfti að greiða starfsmanni búsettum á Ísafirði allt að 90-100 þús. kr meira á mánuði en starfsmanni búsettum á Þingeyri. Starfsmaður staðsettur á Ísafirði sem ekur til Hóla/Sanda, notar í það …


Bíldudalskarlarnir komnir í jólaskap 24. desember 2007
Þeir brostu úr að eyrum Bíldudalskarlarnir 33 sem mættu í Kænuna á laugardaginn, þegar þeir fundu ilmandi skötulyktina í loftinu. Skatan var vel kæst og girnileg og að sjálfsögðu var boðið upp á vestfirskan hnoðmör með góðgætinu.
Olíuhreinsistöð í Hvestu er lífsspursmál fyrir sunnanverða Vestfirði 21. desember 2007
Jón Hákon Ágústsson bæjarfulltrúi í Vesturbyggð lýsir yfir í bloggi á vef sveitarfélagsins, þeirri skoðun sinni að það sé lífsspursmál fyrir sunnanverða Vestfirði að fyrirhuguð olíuhreinsistöð rísi í Hvestu í Arnarfirði.
Þar segir hann meðal annars …

Er bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar búin að missa áhugann á olíuhreinsistöð? 20. desember 2007
Áberandi hefur verið í fréttum undanfarinna ára að bæjarstjórnir hinna ýmissu sveitarfélaga hafa keppst um að fá til sín starfsemi af einhverju tagi. Sjálfsagt er það líka skylda þeirra að halda sjó. Ekki síst á það við um sveitarfélög sem standa höllum fæti, hvað þá þeim sem ramba á brúninni.
„Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur …


Vatnsborin og lyktandi 19. desember 2007
Staðarvalsskýrsla vegna hugsanlegrar olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum er nú opinber. Hún var unnin af Tækniþjónustu Vestfjarða á Ísafirði að beiðni Fjórðungssambands Vestfjarða. Þar eru dregnar fram staðreyndir sem eiga að skipta máli varðandi staðarval hugsanlegra olíuhreinsistöðvar. Vonandi verður skýrslan gagnleg áfram …


Stóriðnað, nei takk – eða jú alveg endilega. Keppnin hafin 17. desember 2007
Telja má að mikil straumhvörf hafi orðið hjá yfirstjórn Ísafjarðarkaupstaðar frá þeim degi þegar á þeim bæ var líst yfir að aldrei yrði reist stóriðja á þeirra umráðasvæði. Slíkt mætti ekki gerast. Á þeim tíma hafði líklega enginn trú á því að stóriðja yrði í boði fyrir vestfirðinga og myndu þeir þar af leiðandi aldrei standa frammi fyrir því að segja nei takk, enga stóriðju hér.
Undraskjótt breytast svo aðstæður …


Páll Óskar og Monika á Patreksfirði 11. desember 2007
Miðvikudaginn 12. desember nk. munu þau Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari og Monika Abendroth hörpuleikari halda tónleika í Patreksfjarðarkirkju ásamt kirkjukór Patreksfjarðarkirkju.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er aðgangur ókeypis eins og venja hefur verið á …

Bíldudalskarlar í skötuveislu 9. desember 2007
Laugardaginn 22. desember ætla Bíldudalskarlar að hittast í hádeginu á Kænunni í Hafnarfirði og fá sér skötu. Þar sem skata er ekki á matseðlinum þennan dag þá er nauðsynlegt að láta skrá sig svo hægt sé að gefa upp hvað margir koma. Vinsamlegast skráið ykkur hjá Gumma Bjarna í síma 862 4289

Aðsókn í byggðakvóta Bíldudals 8. desember 2007
Á vef Tálknafjarðar segir frá því að mikil ásókn sé í byggðakvóta Bíldudals. Segir þar einnig að fjögur fyrirtæki hafi sótt um byggðakvótann sem ætlaður er til vinnslu á Bíldudal. Bæjarráð Vesturbyggðar boðaði til fundar við forsvarsmenn fyrirtækjanna í gær og í fyrradag. Þeir sem …

Skrímsli og sjóræningjar fengu hæstu styrkina 8. desember 2007
Föstudaginn 7. desember ráðstafaði Menningarráð Vestfjarða 20 milljónum króna til 52 verkefna tengdum menningarmálum á Vestfjörðum. Hæstu styrkina hlutu Skrímslasetrið á Bíldudal og Sjóræningjar ehf. á Patreksfirði að upphæð 1,5 milljón hvert um sig. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Náttúrugripasafninu í …

Jólahúsið Svalborg 7. desember 2007
Handverksfélagið Bót og jólahúsið Svalborg bræða saman góða stemningu og stuðla að ljúfri aðventu og gleðilegum jólum.
Opið verður laugardagana 8. og 15. desember í Jólahúsinu Svalborg frá kl:14:00 – 17:00.
Margt í boði:

Kokkur mánaðarins frá Bíldudal 5. desember 2007
Á heimasíðunni Matarlist.is má sjá að ungur kokkur frá Bíldudal, hún Vigdís Ylfa Hreinsdóttir, var valinn kokkur mánaðins af starfsfólki heimasíðunnar. Það vakti athygli fréttamanns Tíðis að Vigdís Ylfa er fyrsta konan til að verða fyrir valinu sem kokkur …


Kynningarfundur um snjóflóðavarnir á Bíldudal 28. nóvember 2007
Kynningarfundur um snjóflóðavarnir á Bíldudal verður haldinn í félagsheimilinu Baldurshaga föstudaginn 29. nóvember 2007 kl. 18:00. Eftirtaldir aðilar kynna stöðu mála...
Bjarni Þór heldur tónleika í Laugarneskirkju 28. nóvember 2007
Trú, von og kærleikur er yfirskrift tónleika sem bílddælski söngvarinn Bjarni Þór heldur í Laugarneskirkju í Reykjavík þann 7. Desember nk. kl: 20:30.
Á tónleikunum flytur Bjarni Þór eigin lög auk sálma og laga með trúarlegu ívafi. Bjarni Þór hélt tónleika með sama nafni á Bíldudals grænum í sumar og vöktu tónleikarnir verðskuldaða athygli.

Bíldudalskallar spá í olíuhreinsun 27. nóvember 2007
Síðastliðinn laugardag hittust „Bíldudalskarlarnir“ á Kænunni á Hafnarfirði. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem það gerðist, heldur er hún að verða föst venja hjá mörgum, þessi „Bíldudalskarlasamkoma“, sem hefur verið bundin við síðasta laugardag hvers mánaðar.
Þennan laugardag var vel mætt að venju og …

Bíldudalskarlar á laugardaginn í Kænunni 22. nóvember 2007
Nú á laugardaginn 24. nóvember verður hittingur í Kænunni Hafnarfirði, frá kl 10 -12. Í Kænuna mætir einnig Hilmar Foss, en hann er einn aðstandenda fyrirhugaðrar olíuhreinsistöðvar og segir frá verkefninu.


Ræktun á bláskel hafin á Tálknafirði 21. nóvember 2007
Á vef Tálknafjarðar segir frá því að í gær hafi hafist vinna við stærðarflokkun og sokkun á eins árs gamalli bláskel í Tálknafirði. Sokkun er það kallað þegar skelin er sett í netsokka og þannig er tryggt að skelin detti ekki af línum og þessi aðferð bætir einnig vöxtinn. Sokkuð skel …
„Þeir eiga að friðlýsa Arnarfjörð, það er ekkert flóknara“ 18. nóvember 2007
„Nú er búið að skipa afmælisnefnd vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar, það fyrsta sem þeir eiga að gera er að friðlýsa Arnarfjörð“ segir Hilmar Einarsson eigandi Hringsdals í Arnarfirði í helgarviðtali í Fréttablaðinu.
Kræklingarækt hafin í Ísafjarðardjúpi 17. nóvember 2007
Kræklingarækt er hafin í Ísafjarðardjúpi og hefur í því sambandi verið stofnað félagið Vesturskel ehf. Búið er að leggja línur sem nemur 12 kílómetrum í Skötufirði og Hestfirði og er búist við að magnið sem myndast á þeim muni þrefaldast á næstu árum. „Iðnaðurinn er mjög vaxandi í heiminum. Ný-Sjálendingar eru mjög …

Vinnudagur og hippakvöld 17. nóvember 2007
Í dag laugardag verður vinnudagur hjá Björgunarsveitinni Kópi þar sem klæða á nýtt hús sveitarinnar. Slysavarnardeildin ætlar að bjóða uppá kaffi og bakkelsi.
Um kvöldið verður mikil stemming þegar ást og friður fá að fljóta yfir vötnum á hippakvöldi sem haldið verður af félögunum tveimur í Baldurshaga.


Handverksfélagið Bót 14. nóvember 2007
Eins og margir vita var stofnað handverksfélag á Bíldudal í fyrra undir nafninu Bót. Sumarið 2006 var félagið með sölu á handverki í gömlu Jónsbúðinni en nú höfum við fengið varanlega aðstöðu í Svalborginni. Í vetur höfum við verið að …


Veiðar ferðamanna eru atvinnuveiðar 10. nóvember 2007
Veiðar erlendra ferðamanna í sjó teljast veiðar í atvinnuskyni en ekki tómstundaveiðar, samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra kynnti ríkisstjórn í gær. Síðustu ár hefur hins vegar færst í vöxt að bjóða ferðamönnum, sérstaklega erlendum, að veiða á sjóstöng. Þær veiðar...

Hátíðarstund hjá Kalkþörungum 9. nóvember 2007
Miðvikudaginn 7. nóvember voru tímamót hjá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Þann dag var útskipað 320 tonnum af fullunnum afurðum. Það var því sönn hátíðarstund hjá þeim „Kalkþörungum“, því þetta var í fyrsta skipti sem skipað er út fullunum afurðum úr verksmiðjunni. Í tilefni dagsins sló vertinn á Vegamótum, …

Stuðningshópur betri vega stækkar 5. nóvember 2007
Strandabyggð hefur bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem styðja við bakið á Hafstraumum um að skora á stjórnvöld að tryggt verði fjármagn þannig að ljúka megi uppbyggingu Vestfjarðarvegar 60 innan sex ára. Eins og greint hefur verið frá stóðu ungir menn ættaðir af Vestfjörðum fyrir tónleikum á …

Óvæntur en ánægjulegur móralskur stuðningur úr norðrinu vegna Vestjarðavegar no 60 3. nóvember 2007
Bæjarráð Bolungarvíkur skorar á stjórnvöld að ljúka uppbyggingu Vestfjarðavegar 60 innan sex ára. Áskorunin var samþykkt á bæjarráðsfundi 1. nóv. í tilefni af tónleikum Hafstrauma sem haldnir yrðu í Reykjavík sama kvöld. Umfangsmiklar …

Safnað fyrir vestfirskum vegum 1. nóvember 2007
Frumuðirnir í Hafstraumum sem ættu að vera Patreksfirðingum og fleiri vestfirðingum góðkunnugir taka nú höndum saman og efna til stórsöfnunar þar sem safnað er fyrir hvorki meira né minna góðum Vestfirskum vegum. Tónleikar verða...
Uppsagnir hjá Stöpum 31. október 2007
Öllum 12 starfsmönnum fiskvinnslunnar Stapar ehf. á Bíldudal, 9 konum og 3 körlum, var sagt upp störfum í dag. Flestir hafa eins mánaðar uppsagnarfrest.
Fiskvinnslan sem hóf rekstur í maí síðastliðnum hefur glímt við rekstrarerfiðleika frá byrjun, bæði vegna …



Tilkynning frá Arnfirðingafélaginu !! 31. október 2007
Breytt staðsetning Haustfagnaðs 3. nóvember 2007 !!
Kæru félagsmenn.
Vegna óviðráðanlegra ástæðna verðum við að
færa Haustfagnaðinn í annan sal.
Ný staðsetning er:
Salur Félags eldri borgara að Stangarhyl 4, 110 Reykjavík ( á 2. hæð)



Ferða- og útivistarkort Ferðamálasamtaka Vestfjarða orðin fáanleg á vefnum 28. október 2007
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa undanfarið unnið að útgáfu á alhliða ferða- og útivistarkortum fyrir Vestfirði og Dali. Á liðnu sumri komu fyrstu fögur kortin út sem ná yfir syðri hluta Vestfjarða frá Vesturbyggð, Reykhólasveit og syðri hluta Stranda auk Dalassýlu. Til stendur að þau þrjú kort sem vantar upp á til að dekka allan Vestfjarðakjálkann komi út snemma á næsta ári. Ferðakort Ferðamálasamtaka Vestfjarða sem hefur verið ..........

Bíldudalskarlarnir 27. október 2007
Það var fjölmennt og létt yfir Bíldudalskörlum á Kænunni í morgun. 20 manns mættu á staðinn og var skeggrætt um fjörðinn fagra, landið og heimsmálin. Sú skemmtilega hugmynd var viðruð...
Willtir Westfirðir tilnefndir til Edduverðlauna í ár 25. október 2007
Sjónvarpsþættirnir Willtir Westfirðir eru tilnefndir til Edduverðlauna sem besti frétta- og/eða viðtalsþátturinn í ár. Um er að ræða þætti um villta náttúru Vestfjarða, mannlíf, menningu og matargerð undir berum himni. Í þeim er ferðast um land, sjó og loftin blá frá Látrabjargi að Hornströndum auk Reykhólasveitar og Strandasýslu. Meðal annars...

Björgunarsveitin Kópur auglýsir: 23. október 2007
Til stendur að einangra og klæða nýja húsið okkar að innan og af því tilefni höfum við ákveðið að hafa vinnudag 17. nóvember. Við viljum biðja alla sem vettlingi geta valdið að aðstoða okkur við þetta verk, íbúa Bíldudals jafnt sem brottflutta. Slysavarnarkonur munu sjá um að hafa eitthvað gott með kaffinu. Sýnum...
Bíldudalskarlarnir hittast á laugardaginn 22. október 2007
Nú á laugardaginn ætla Bíldudalskarlarnir að hittast aftur í Kænunni í Hafnarfirði. Síðast mættu 18 karlar og var mikið fjör og er nokkuð ljóst að þessi tími frá 10 -12 á laugardögum er heppilegri en fimmtudagstíminn. Við skorum á alla að mæta og heilsa upp á gamla félaga, spjalla og njóta þess að vera í góðra vina hópi.

Vegagerð í Þorskafirði boðin út . „ … kann að þykja einkennileg …“ 17. október 2007
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu á um 6,1 km kafla Vestfjarðavegar (60) um austanverðan Þorskafjörð, á milli Hofstaðavegar og Þorskafjarðarvegar. Frestur til að skila tilboðum er til 6. nóvember. Samkvæmt útboðsgögnum á útlögn klæðningar að vera lokið 1. september 2008, en verkinu að fullu lokið fyrir …

Þriðja vinnuferðin í Skrímslasetrið 10. október 2007
Um síðustu helgi var enn á ný mættur hópur sjálfboðaliða á þak Skrímslasetursins á Bíldudal. Skipt var um sperrur á stórum hluta þaksins og settur tjörupappi. Ekki náðist að járna í þetta skiptið og er því stefnt að annarri ferð fljótlega og tekst þá vonandi að ljúka viðgerð á þaki.


Vinnuferð í Skrímslasetrið 1. október 2007
Um næstu helgi verður farið í vinnuhelgi til Bíldudals að gera upp þakið á Skrímslasetrinu. Þetta er þriðja ferðin sem farin er vestur í haust og hefur stemningin í ferðunum verið engu lík. Þetta vinnuframlag sjálfboðaliða er ómetanlegt og sýnir samtakamátt okkar Arnfirðinga þegar mikið liggur við. Þetta framlag getur gert gæfumunin á hvort skrímslasetrið komist upp eða ekki.
Bíldudalskarlarnir - nýr staður 25. september 2007
Karlarnir frá Bíldudal er hópur sem hefur hist fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði í talsverðan tíma. Samkomustaðurinn hefur verið Gallery fiskur í Nethyl kl. 12:00. Þessi tími hefur ekki hentað öllum og oft hefur verið erfitt að fá sæti fyrir alla. Nú hefur verið ákveðið að breyta um stað og stund í kl. 10:00 á laugardögum og staðurinn er Kænan í Hafnarfirði. Nú á laugardaginn 29. september ætla menn að hittast í Kænunni í fyrsta sinn fá sér kaffi og spjalla. Allir velkomnir.

Kvenfélagið Framsókn á Bíldudal stóð fyrir fyrirlestri um olíhreinsistöð 23. september 2007
Kvenfélagið Framsókn á Bíldudal var gestjafi aðalfundar kvenfélaga á Vestjarða 15. sept. Aðalfundir eru haldnir til skiptis í aðildarfélögunum. Í sambandinu eru 14 kvenfélög á svæði sem nær frá Barðaströnd að Djúpi.
Una María Óskarsdóttir flutti fundarmönnum erindi um aukna hreyfingu og bætt matarræði.
Einnig flutti Hilmar Foss, …

video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Nýtt þak á Skrímslasetur 21. september 2007
Um síðustu helgi, 8. og 9. september, vann hópur manns á þaki Skrímslasetursins á Bíldudal. Klárað var að leggja þakpappa og járn á helming þaksins og gekk verkið vel þrátt fyrir strekkings vind á laugardegi. video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
„Vill minnihluti bæjarstjórnar ekkert um olíuhreinsistöð fjalla?” 11. september 2007
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, lýsir yfir furðu sinni á afgreiðslu minnihlutans á ályktun sem bæjarstjórn samþykkti um losunarkvóta koltvísýrings. Í grein sem birtist á bb.is í morgun spyr Birna hvort minnihlutinn vilji ekkert meira um olíuhreinsistöð fjalla. „Á bæjarstjórnarfundinum lagði Gísli H. Halldórsson, bæjarfulltrúi D-lista fram tillögu að ályktun bæjarstjórnar vegna …

Vegir eru drullusvað 10. september 2007
Úlfar B. Thoroddsen, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir úrbótum á vegaframkvæmdum í Barðastrandarsýslum. Haft var eftir Úlfari í fréttum Ríkisútvarpsins að það sé óviðundandi með öllu , að á tuttugustu og fyrstu öldinni, séu vegirnir eitt forarsvað. Frá Patreksfirði til Reykjavíkur er 85 …

Vinnuhelgi og kynning á Skrímslasetri 4. september 2007
Stór hópur skrímslaáhugamanna byrjaði á síðasta laugardagsmorgun að skipta um þak á gömlu „Matvælaiðjunni“ á Bíldudal. Þegar vinnu lauk á sunnudegi höfðu alls 33 einstaklingar komið að verkinu með einum eða öðrum hætti.
Vinnuferð í Skrímslasetur 31. ágúst 2007
Aðstandendur Skrímslaseturs á Bíldudal og velunnarar þess munu vera með vinnuhelgi dagana 1.–2. sept. nk. Ætlunin er að vinna frá kl. 8–18 á laugardag og kl. 9–15 á sunnudag. Þeir sem sjá sér fært að leggja hópnum lið eru hjartanlega velkomnir með hamarinn.
Á laugardeginum...
Nýr bátur kemur til Patreksfjarðarhafnar 29. ágúst 2007
Föstudaginn 31. ágúst er Valgerður BA-45 væntanleg til Patreksfjarðar. Útgerðarfélagið Skriðnafell ehf er eigandi bátsins sem er 63,7 bt. dragnótarbátur og mun gerður út frá Patreksfirði. Óskar H. Gísla…

Viljayfirlýsing um vatnsátöppun afturkölluð 26. ágúst 2007
Viljayfirlýsing milli Vesturbyggðar og fyrirtækisins O ehf., um samstarf á átöppun og útflutningi vatns frá Patreksfirði hefur verið afturkölluð. Á bæjarráðsfundi á miðvikudag var tekið fyrir bréf frá O ehf., þar sem skýrt er frá því að grundvöllur rekstrar átöppunarverksmiðju við borholu á Patreksfirði sé brostinn. Ástæðan er …
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Landsbyggðin að dragast aftur úr 26. ágúst 2007
Að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi, sýnir nýútkomin skýrsla Byggðastofnunar um svæðisbundin hagvöxt það svart á hvítu að landsbyggðin er að dragast aftur úr höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni kemur fram að hagvöxtur á Vestfjörðum var á árunum 1998-2005 neikvæður um …

Umhverfisverðlaun í Vesturbyggð 23. ágúst 2007
Ákveðið hefur verið að efna til umhverfisverðlauna í Vesturbyggð og veita verðlaun í þremur flokkum, snyrtilegastu lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta lögbýlið og snyrtilegasta fyrirtækið.
Íbúum gefst kostur á að tilnefna fallegasta garðinn, snyrtilegasta lögbýlið og snyrtilegasta fyrirtækið á heimasíðu Vesturbyggðar á …

Lions styrkir nemendur til bókakaupa 22. ágúst 2007
Fyrstu nemar framhaldsskóladeildarinnar á Patreksfirði fóru í dag til Grundafjarðar og hefja þar nám sitt í Fjölbrautarskóla Snæfellinga á morgun. Við brottför afhendu Lionsmenn hverjum nemanda í fullu námi 20.000 kr. sem ætlað er til …

Strangar kröfur gerðar til umhverfis 22. ágúst 2007
Samtök atvinnulífsins segir, að verði olíuhreinsistöð byggð hér á landi muni hún þurfa að uppfylla ákvæði mjög umfangsmikilla lagabálka bæði á undirbúnings- og framkvæmdatíma og eins þegar sjálfur reksturinn hefst.
SA segja á heimasíðu sinni, að …

Olíuhreinsistöð ekki í samræmi við Kyoto 20. ágúst 2007
„Mér finnst það lýsa því best hve óljósar þessar áætlanir eru að formælendur þessara fyrirtækja skuli miða við lægstu mögulegu gildi varðandi losun gróðurhúsalofttegunda þegar allir sem hafa kynnt sér málið vita að losun gróðurhúsalofttegunda getur verið miklu meiri," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra vegna …

Þverun Þorskafjarðar ekki á áætlun 17. ágúst 2007
Vegagerð í Þorskafirði verður boðin út í haust en ekkert bólar á þverun Þorskafjarðar. Gísli Eiríksson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar segir að þverun fjarðarins sé ekki komin á fjögurra ára vegaáætlun og því verði einhver bið á framkvæmdum við hana. Í haust verða framkvæmdir við bundið slitlag boðnar út. Um er að ræða …

Olíuhreinsistöð líkleg í Vesturbyggð 16. ágúst 2007
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í dag að breyta skipulagsmálum í sveitarfélaginu, sem leyfir byggingu olíuhreinsistöðvar í landi Hvestu í Arnarfirði. Viljayfirlýsing um landakaup þar undir hreinsistöð liggur fyrir.
Í morgun barst forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar bréf frá Íslenskum Hátækniiðnaði þar sem þess var farið á leit að bæjarstjórnin staðfesti vilja sinn til …

Vinnuferð í skrímslasetrið 15. ágúst 2007
Félag áhugamanna um skrímslasetur á Bíldudal leitar að sjálfboðaliðum í vinnuferð til Bíldudals helgina 31.ágúst - 2. sept. Félagið hefur fest kaup á Matvælaiðjunni undir skrímslasetrið sem stefnt er að opna vorið 2008. Þakið á húsinu er orðið þreytt og …

Forathugun vegna olíuhreinsistöðvar lýkur í september 15. ágúst 2007
Forathugunum vegna væntanlegrar olíuhreinsistöðvar við Hvestu í Arnarfirði og við Sanda og Hóla í Dýrafirði, lýkur í september. Nú er Náttúrustofa Vestfjarða að skoða náttúrufar á landsvæðunum sem um ræðir og í september verða firðirnir dýptarmældir. Kostnaður Fjórðungssambands Vestfirðinga vegna athugananna er á áttundu milljón króna. Vonir standa til að ríkisvaldið greiði fjórðungssambandinu síðar þessa upphæð. Anna …

Stuttmynd tekin upp í Arnarfirði 14. ágúst 2007
Tökum á stuttmynd sem byggð er á einu Grimms ævintýranna lauk nýlega, en myndin var tekin upp í Arnarfirði. Myndin heitir Harmsaga og á Vísisvefnum segir að myndin sé ævintýradrama fyrir fullorðna með drungalegu ívafi. Leikstjóri er …

Pistill um Olíuhreinsistöð 13. ágúst 2007
Á vef Vesturbyggðar er pistill eftir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóra Vesturbyggðar um umhverfi og áhrif olíuhreinsistöðvar. Ástæðu pistilsins segir Ragnar vera neikvæða umræðu sem virðist vera að fara á flug og því tilefni til upplýsingar um staðreyndir, um olíuhreinsistöðvar svipaðar þeirri sem hugsanlega …


Gísli Ægir í úrslit stuðboltans á Rás 2 31. júlí 2007
Bílddælingurinn Gísli Ægir Ágústsson er kominn í úrslit í leitinni að stuðboltanum 2007 á Rás 2. Úrslitin verða á föstudaginn kl. 11:00
Það er til mikils að vinna fyrir sigurvegarann, fjöldi veglegra vinninga og að auki fær sigurvegarinn að koma fram á Þjóðhátíðinni í Eyjum. Arnfirðingur óskar Gísla velfarnaðar á föstudaginn og hvetur Arnfirðinga og aðra til að hlusta á Rás 2 á föstudaginn.

Þórarinn Hannesson með nýja geislaplötu 25. júlí 2007
Hjá Mogomusic í Ólafsfirði er komin út geislaplatan Dyggðirnar sem inniheldur 15 lög eftir Þórarin Hanneson en textar eru eftir Herdísi Egilsdóttur. Textarnir eru úr bókunum Betri skapgerð sem Listfengi ehf gefur út og eru m.a. notaðar í mörgum af grunn- og leikskólum landsins.
Þverun eða ekki þverun Þorskafjarðar 24. júlí 2007
Á því hefur borið að margir séu reiðir vegna ákvörðunar Samgönguráðuneytisins og / eða Vegagerðarinnar, að fara í vegagerð inn með sunnanverðum Þorskafirði, í stað þess að þvera Þorskafjörðin eins og lengi hefur verið rætt um - og flestir litið á sem spurning um tíma en ekki hvort.
Því hafa ýmsir litið svo á að fyrrnefnd vegagerð inn með Þorskafirði, þýði í raun …

Tálknafjör á Tálknafirði 20. júlí 2007
Tálknafjör fer fram á Tálknafirði helgina 27.-28. júlí.




Gönguhátíð á sunnanverðum Vestfjörðum 13. júlí 2007
Þann 26.-29. júlí næstkomandi verður aftur haldin gönguhátíð á
sunnanverðum Vestfjörðum. Gönguferðirnar, leiksýningarnar og
uppákomurnar féllu í góðan jarðveg hjá bæði heimamönnum og gestkomandi á síðasta ári en þá var hátíðin haldin í fyrsta sinn. Því mætum við aftur
til leiks með nokkrar nýjar leiðir og nýjar uppákomur.

Myndir frá Bíldudals grænum... 10. júlí 2007
Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar..., sem nú er nýafstaðin, heppaðist afar vel og hafa fjölmargir gesta haft samband við aðstandendur og lýst yfir ánægju sinni með hátíðina. Myndir frá hátíðinni eru nú komnar á vefinn.

Hátíðarlagið komið á vefinn 20. júní 2007
Undir merki Bíldudals grænar... hér til hægri á síðunni eru ítarlegar upplýsingar um fjölskylduhátíðina ásamt nýútkomnu hátíðarlagi sem flutt er af Farfuglunum.
Skipun nefndar til að undirbúa 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 18. júní 2007
Forsætisráðherra skipaði í dag [17. júní] nefnd til að undirbúa hvernig minnast eigi þess að 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.
Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin leiti enn fremur …

Fótboltamót á Bíldudals grænum ...... 15. júní 2007
Á föstudeginu á Bíldudals grænum .... verður fótboltamót á Völuvelli. Mótið er öllum opið 16 ára og eldri og er hægt að skrá lið eða skrá sig sem einstaklingur á arnfirdingur@arnfirdingur.is
Keppt verður í 6 manna liðum og verða búin til lið úr þeim sem skrá sig sem einstaklingar en einnig má bara mæta og skrá sig á staðnum.
Heyrst hefur að margir frægir ÍFB kappar ætli að mæta og gaman verður að sjá hvort menn hafi einhverju gleymt.


Farfuglarnir taka upp hátíðarlag 11. júní 2007
Farfuglunum var í ár falið að semja hátíðarlag fyrir
Bíldudals grænar.
Um helgina fóru meðlimir Farfuglanna í sumarbústað og
tóku upp hátíðarlag. Upptökur stóðu í einar sex
klukkstundir en lagið er núna í hljóðvinnslu og verður
því verður dreift á netinu um leið og henni lýkur sem
verður væntanlega nú í vikunni.
Bíldudals grænar... 2007 15. maí 2007

Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar… er haldin annað hvert ár og er nú haldin í þriðja sinn í sumar þann 29. júní til 1. júlí 2007 á Bíldudal.
Hátíðin hefur þá sérstöðu að Arnfirðingar sjá sjálfir um öll skemmtiatriði enda er hátíðin liður í því að viðhalda þeirri miklu menningar-, lista- og sagnahefð sem …

Leiguíbúðir Arnfirðingafélagsins Bíldudal 6. maí 2007
Arnfirðingafélagið og Eagle fjord á Bíldudal hafa gert með sér samkomulag um leigu á íbúðum fyrir félagsmenn. Þetta er annað árið sem félagið býður félagsmönnum uppá leiguíbúðir á Bíldudal. Íbúðin sem félagið hafði í fyrra hefur nú verið seld og að auki missti félagið búslóðina í brunanum í Tréverki í vor og tók því þá ákvörðun að leigja íbúðir af Eagle fjord.

Heillaóskir 3. maí 2007
Borist hafa heillaóskir til Bílddælinga og íbúa Vesturbyggðar frá séra Jakobi Ágústi Hjálmarssyni í tilefni vígslu kalkþörungaverksmiðjunnar.

Til hamingju Bílddælingar og íbúar Vesturbyggðar
28. apríl var góður dagur og þökk þeim sem til hamingjuefnis hans stofnuðu og unnu að. Bíldudalur hefur með opnun kalkþörungaverksmiðjunnar fengið þá ballest í atvinnulífið ...........


Kalkþörungaverksmiðjan vígð 30. apríl 2007
Laugardaginn 28. apríl var kalkþörungaverksmiðja Íslenska Kalkþörungafélagsins ehf. formlega opnuð af sjávarútvegsráðherra Einari Kristni Guðfinnssyni.
Sjá meðfylgjandi grein Einars Kristins sem hann skrifaði í tilefni opnunarinnar.
Þegar verðmæti verða til .. ......

Frumsýning á Bíldudal 23. apríl 2007
Elvar Logi Hannesson frumsýndi einleik sinn Skrímsli á Bíldudal á sumardaginn fyrsta. Góður rómur var gerður að sýningunni og frumsýningargestir ánægðir með verkið. Í hófi eftir sýninguna kynntu aðstandendur Skrímslaseturs á Bíldudal merki setursins og greindu frá stöðu mála. Margt góðra gesta voru viðstaddir sýninguna þar á meðal Einar Kristinn sjávarútvegsráðherra.
Hér á eftir fer grein sem Einar skrifaði um sýninguna. …


Skrímsli frumsýnd á Bíldudal 17. apríl 2007
Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal á sumardaginn fyrsta, 19. apríl.
Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg.
   Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi. Strax í Landnámu er getið sjávar- og …

Grímuball í Baldurshaga 3. apríl 2007
Grímuball verður haldið í Baldurshaga á Bíldudal eftir miðnætti á föstudaginn langa.

Viðar og Matti munu leika fyrir dansi
16 ára aldurstakmark
Veglegir vinningar í boði fyrir …

Opinn fundur á morgun á Bíldudal 27. mars 2007
Opinn fundur verður haldinn með íbúum á Bíldudal, miðvikudaginn 28. mars 2007 í félagsheimilinu Baldurshaga kl. 20:00.
Fundarefni: • Yfirfarnar innsendar athugasemdir við deiliskipulag. Byggingarfulltrúi Vesturbyggðar, Bjarni Þór Einarsson mætir og fer yfir athugasemdirnar • Atvinnuhorfur í fiskvinnnslu á Bíldudal. Fulltrúar frá Odda hf. og …

Oddi eykur við aflaheimildir 23. mars 2007
Fiskvinnslan Oddi á Patreksfirði hefur keypt bát og kvóta útgerðarfélagsins Bjargs á Patreksfirði. Um er að ræða vélbátinn Brimnes, sem er 80 tonn að stærð, og aflaheimildir upp á tæplega 400 þorskígildistonn. Kaupverð er tæplega 800 miljónir. Þar með …

Hljómsveit Hússins á Classic Rock um helgina 16. mars 2007
Hálf bílddælska stuðbandið „Hljómsveit Hússins“ leikur fyrir dansi á Classic Rock í Ármúla 5 í Reykjavík laugardagskvöldið 17. mars.
Hljómsveitin lék á síðustu Grænu bauna hátíð við mikinn fögnuð og þeir félagar hafa þegar tilkynnt komu sína á hátíðina í sumar.
Hljómsveitina skipa: …

Staða slökkviliðsstjóra auglýst til umsóknar 6. mars 2007
Staða slökkviliðsstjóra í Vesturbyggð hefur verið auglýst laus til umsóknar.
Starfslýsing:
Yfirumsjón og ábyrgð á daglegum rekstri Brunavarna Vesturbyggðar. Yfirstjórn slökkvistarfs við eldsvoða og mengunaróhappa á landi. Um er að ræða hlutastarf allt að 50%.

Viltu troða upp á Bíldudals grænum 2007 5. mars 2007

Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar verður haldin helgina 29. júni til 1. júlí. Að vanda verður tónlist gert hátt undir höfði enda eru Arnfirðingar annálaðir fyrir góðan tónlistarflutning.
Ef þú hefur hug á að skemmta á hátíðinni með hljóðfæraleik eða söng þá vinsamlegast sendu línu á Bjarna Þór, bjarni@ejs.is



Gísli Súrsson fer til Albaníu 1. mars 2007
Kómedíuleikhúsinu hefur verið boðið að sýna einleikinn Gísla Súrsson á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Albaníu í vor. Um er að ræða einleikjahátíð sem ber heitið Albamono og er hún haldin í Korce í Albaníu. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin og er dagskrá hátíðarinnar fjölbreytt og einleikin. Það er því mikil viðurkenning fyrir …

Samgönguráðherra skoðaði kalkþörungaverksmiðjuna 27. febrúar 2007
Samgönguráðherra Sturla Böðvarsson var í heimsókn á Bíldudal í dag og skoðaði meðal annars Kalkþörungaverksmiðjuna. Nú er unnið að stillingum og prufukeyrslu tækja og tóla í verksmiðjunni en reiknað er með að í næstu viku verði verksmiðjan gangsett. Nú þegar er búið að framleiða fyrstu kílóin en gert er ráð fyrir að framleiða um 10 til 15 þúsund tonn á …

Sólarkaffi Arnfirðinga 18. febrúar 13. febrúar 2007
Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið Konudaginn 18. febrúar kl. 15.00 í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6 Reykjavík. Rjúkandi pönnukökur og aðrar girnilegar kræsingar á borðum.
Fjölmennum og fögnum hækkandi sól.

Nefndin.

Áhugaverðir möguleikar í hjarðeldi á þorski 5. febrúar 2007
Nú þegar lok eldisverkefnis Hafrannsóknarstofnunarinnar blasa við, birtist í Morgunblaðinu ágæt úttekt á því merka verkefni. Þetta þróunarverkefni þar sem horft hefur verið til framtíðar með nýjum og spennandi hætti, hefur þó ekki átt fylgi að fagna allstaðar og beinlínis verið unnið gegn því. Þau öfl …

Þorrablót Slysavarnardeildar kvenna Bíldudal. 29. janúar 2007
Laugardaginn 3. febrúar verður þorrinn blótaður á Bíldudal en þá heldur Slysavarnardeild kvenna Bíldudal sitt árlega þorrablót. Í fyrra var metþátttaka en núna stendur til að slá það met. Gleðisveitin Farfuglarnir munu leika fyrir dansi og að sjálfsögðu verða skemmtiatriðin á sínum stað. Húsið opnar kl. 20:00 en dagskráin hefst kl. 20:30 og aldurstakmark er 18 ár.

Hafísspöng lokaði Arnarfirði 27. janúar 2007
Hafísspöng var landföst í mynni Arnarfjarðar í gær og talið er mjög líklegt að ís reki inn á Vestfirði í dag. Veðurstofan sendi frá sér viðvörun síðdegis í gær og benti á nálægð hafíss skammt undan Vestfjörðum. Siglingaleiðir á þeim slóðum voru sagðar geta verið mjög varasamar og jafnvel lokaðar litlum bátum. Jón Þórðarson á Bíldudal, sem m.a. sér um vefinn www.bildudalur.is, ók út í Selárdal við Arnarfjörð og tók myndir …

Vestfirska náttúruvörufyrirtækið Villimey slf. fær alþjóðlega vottun 25. janúar 2007
Fyrirtækið Villimey slf., sem er í eigu Aðalbjargar Þorsteinsdóttur á Tálknafirði, hefur nú fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til sjálfbærrar söfnunar á villtum íslenskum plöntum. Vottunin nær til tæplega 80 ferkílómetra landsvæðis í Tálknafirði og Arnarfirði og mun Villimey slf. mun nýta villtar plöntur af svæðinu til fjölþættrar framleiðslu á lífrænum heilsuvörum, græðikremum og snyrtivörum. Vottorð þessu …

Fiskvinnsla hefst á ný á Bíldudal 23. janúar 2007
Sjávarútvegsfyrirtækin Oddi hf á Patreksfirði og Þórsberg ehf. í Tálknafirði, ásamt tengdum fyrirtækjum, hafa ákveðið að stofna og hefja rekstur sjávarútvegsfyrirtækis á Bíldudal.
Grundvöllur stofnunar fyrirtækisins byggir á sameiginlegu átaki stjórnvalda, bæjarstjórnar Vesturbyggðar og fyrirtækjanna í samvinnu við ýmsa aðra aðila.
Í tilefni þessara tíðinda er flaggað á Bíldudal í dag, biðin er á enda og nú horfum við björtum augum á framtíðina þar sem hjól atvinnulífs fara á fullan snúning innan tíðar.

Mótmæla ráðningu hafnarvarðar: „Ragnar Reykás hvað!“ 22. janúar 2007
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Vesturbyggð hafa mótmælt því harðlega að ráðinn hafi verið utanbæjarmaður í stöðu hafnarvarðar við Bíldudalshöfn, en sá mun hafa lögheimili í Ísafjarðarbæ. Vísa þeir til þess að forseti bæjarstjórnar, Úlfar Thoroddsen, hafi á sínum tíma mótmælt því þegar utanbæjarmaður var ráðinn í starf aðstoðaryfirlögregluþjóns á Patreksfirði. Bókun sjálfstæðismanna fer hér …

Þorrablót á Bíldudal 22. janúar 2007
Nú stendur undirbúningur fyrir þorrablótið á Bíldudal sem hæst en það verður haldið laugardaginn 3. febrúar. Fyrir dansi mun leika arnfirska hljómsveitin Farfuglarnir sem nú æfa af krafti fyrir blótið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í æfingahúsnæði sveitarinnar nú um helgina. Það má búast við hörku blóti og heyrst hefur af hópi manna og kvenna sem ætla að fara vestur og blóta þorra með heimamönnum.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Fundur um áform vestfirskra stofnana 19. janúar 2007
Kynningarfundur um starfsemi og áform vestfirskra stofnana í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi var haldinn í Skjaldborgarbíói þriðjudaginn 16. janúar. Fundurinn var mjög vel sóttur og umræður að loknum erindaflutningi mjög gagnvirkar.
Fundurinn hófst á kynningu nemenda 9. bekkjar Grunnskóla Patreksfjarðar á verkefni sem nemendurnir unnu er þeir voru í 8. bekk og nefnist “Unglingalýðræði í sveit og bæ”. Nemendurnir fengu verðlaun fyrir verkefnið, ferð til …

Vestfirðingar fá Digital Ísland 12. janúar 2007
Digital Ísland er að koma til Vestfjarða og sjónvarpssendingar þar verða framvegis í stafrænum gæðum. Vestfirðingar geta því notið enn fleiri útvarps- og sjónvarpsstöðva sem eru í boði 365.

Á næstu vikum fá áskrifendur á Vestfjörðum heimsókn frá þjónustufólki Mömmu …

Umhverfisráðherra fellst á leið B 6. janúar 2007
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá 28. febrúar 2006 um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar nr. 60 á milli Bjarkarlundar og Eyrar í Reykhólahreppi, nema hvað varði leið B í 2. áfanga. Á hana er fallist með sex skilyrðum.

Líður að prufukeyrslu 5. janúar 2007
Starfsmenn sem unnið hafa við uppsetningu tækja við kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal, eru nú óðast að hrista af sér hátíðaværðina og takast nú á af fullum þunga við síðustu skrefin, sem telja má að séu í hillingum framundan.
Síðustu hlutir í vélasamstæðuna …

Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnnar Kóps 29. desember 2006
Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar Kóps verður opin sem hér segir:

Föstudaginn 29. desember frá kl. 17:00 – 19:00
Laugardaginn 30. desember frá kl. 13:00 – 18:00
Sunnudaginn 31. desember 12:00 – 13:00.

Flugeldarnir verða seldir í nýju húsnæði sveitarinnar að Hafnarbraut 12 (Gamla verkstæðinu hjá Gísla Matt.) Viljum við minna á að mörg mögnuð tilboð og úrval á tertum hefur aldrei verið meira. Björgunarsveitin Kópur þakkar einstaklingum og fyrirtækjum stuðninginn á árinu
og óskar öllum friðar og farsældar á komandi ári.

Vísnakvöldið í kvöld 29. desember 2006
Í kvöld verður haldið hið árlega vísnakvöld í Baldurshaga í tuttugasta sinn. Mikill fjöldi listamanna hefur nú þegar skráð sig til leiks og eins og alltaf þá felast einhverjir nýir í hópnum sem eru að stíga sín fyrstu spor á listabrautinni. Vísnakvöldið er orðið ómissandi þáttur í menningarlífi Bílddælinga og eiga þeir einstaklingar sem fyrir þeim hafa staðið heiður skilið.

Jólin 2006 24. desember 2006







Þórarinn Hannesson gefur út ljóðabók 23. desember 2006

Þórarinn Hannesson er fæddur og uppalinn á Bíldudal en hefur undanfarin 13 ár búið á Siglufirði. Þetta er fyrsta ljóðabók hans en áður hefur hann sent frá sér þrjú rit og tvær geislaplötur með frumsömdum lögum og textum auk þess að eiga lög á safnplötum. En eftir hann liggja á annaðhundrað dægurlög og textar.
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Rússneskir sjónvarpsmenn á Bíldudal 21. desember 2006
Undanfarna daga hafa verið á Bíldudal sjónvarpsfólk frá Rússneska sjónvarpinu í Moskvu sem eru að gera kynningarmynd um Ísland og einnig um loftskeytastöð Þorvaldar í Otradal. Einnig var farið út í Hvestu og virkjunin hjá Jóni Bjarnasyni skoðuð og …

Samkennd í þorpi hjálpar Þorpi 18. desember 2006
Frá því var sagt á Tíðis 16. des. að litlu hefði munað að illa hefði farið „þegar kviknaði í blómaskreytingu á veitingastaðnum Þorpinu um tvö leytið [þann] dag. Brunavarnir Vesturbyggðar voru kallaðar út en þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang …

Krafa um viðunandi samgöngur 15. desember 2006
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 12. 12. var lögð fram ályktun um samgöngumál sem samþykkt var á 401. fundi bæjarráðs.
Var hún svohljóðandi:



Rækjustofninn á uppleið í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi 11. desember 2006
,,Þótt enn sé ekki farið að hylla undi veiðar á innfjarðarrækju var árangurinn betri en ég átti von á í Arnarfirði. Þá eru einnig góðar fréttir frá Ísafjarðardjúpi,“ sagði Unnur Skúladóttir, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, í samtali við nýjustu Fiskifréttir en niðurstöður úr grunnslóðakönnun á rækju á fjörðum …

Vegagerðamerin 9. desember 2006
Á textavarpinu 6. 12. segir Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreksfirði, „að það yrði áfall fyrir byggðirnar í Barðastrandarsýslu, ef umhverfisráðherra heimilaði ekki vegagerð gegnum Teigsskóg á Hallsteinsnesi. Fara verður um Teigsskóg, ef sniðganga á þá illræmdu hálsa Hjallaháls og Ódrjúgsháls, sem …

Lionsmenn á Patreksfirði komnir í jólaskap 7. desember 2006
Félagar í Lionsklúbbi Patreksfjarðar hefja jólafjáröflun sína á næstu helgi en á laugardag verða þeir með jólatrjáa- og grenisölu á Friðþjófstorgi. Desember er einn af stóru fjáröflunarmánuðunum hjá klúbbnum og verða félagarnir með sitt …

K.N.H. bauð lægst í endurbyggingu á Vestfjarðavegi 7. desember 2006
Verktakafyrirtækið K.N.H. ehf bauð lægst í endurbyggingu stubbsins frá Eyrará í Kollafirði, að Kúalág á Skálanesi, sem er 9,2 km. langur hluti Vestfjarðavegar. Tilboð voru opnuð 28.nóv. 2006. K.N.H. ehf bauð 177.636.363 kr. í verkið eða …

Hafnarstjórn Vesturbyggðar auglýsir laust starf við Patrekshöfn 30. nóvember 2006
Helstu verkefni:
1. Dagleg umsýsla hafnarinnar, s.s. samskipti við þjónustuaðila, skipaskráning, skipan hafnarlegu o.fl.
2. Framkvæmd smærra viðhalds eftir því sem við á, s.s smyrja krana, mála hafnarkant o.fl.
3. Halda hafnarsvæði hreinu, eftirlit með að …


Vesturbyggð auglýsir laust starf þjónustufulltrúi á Bíldudal 30. nóvember 2006
A. Þjónustumiðstöð Vesturbyggðar, Bíldudal.
Þjónustufulltrúi er deildarstjóri þjónustumiðstöðvar Vesturbyggðar á Bíldudal og ber ábyrgð á rekstri hennar.
Helstu verkefni eru eftirfarandi:

Stórmerkur árangur af rannsóknarverkefni Hafró í Arnarfirði 29. nóvember 2006
Nú líður senn að lokum rannsóknaverkefnis Hafrannsóknarstofnunar sem staðið hefur yfir í Arnarfirði. Árangur þess er stórmerkur og verðmætur. Björn Björnsson verkefnisstjóri þessa verkefnis gerði samantekt fyrir arnfirding.is. Fer samantekt Björns hér …

Hundrað ára afmæli Bíldudalskirkju 28. nóvember 2006
Síðastliðinn sunnudag var mikið um dýrðir á Bíldudal þar sem haldið var upp á eitthundrað ára afmæli kirkjunnar. Afmælishátíðin hófst með messu í kirkjunni þar sem biskupinn yfir Íslandi Hr. Karl Sigurbjörnsson flutti predikun. Séra Sveinn Valgarðsson sóknarprestur á Tálknafirði og á Bíldudal messaði. Margir af þeim prestum sem hafa þjónað við kirkjuna voru viðstaddir.


Myndir að vestan! 25. nóvember 2006
Upp á síðkastið hafa margir brottfluttir Arnfirðingar sett sig í samband við umsjónarmenn vefsins. Þeir kvarta sáran yfir skorti á nýju myndefni frá Bíldudal og Arnarfirði öllum. Hvernig líta fjöllin út í dag...
Árshátíð Leikfélagsins Baldurs haldin í 40. sinn 24. nóvember 2006
2. desember munu félagar í Leikfélaginu Baldri bjóða til árlegrar árshátíðar -eða Desinn, eins og hátíðin hefur verið kölluð- og einnig 40 ára leikafmælis, í Baldurshaga Bíldudal. Hátíðin hefst með því að húsið er opnað kl. 19.00 og gestum boðið upp á fordrykk áður en vísað er til sætis.
Klukkan 20.00 flytur formaður …

Góð afkoma hjá Odda hf. 21. nóvember 2006
Ársreikningur Odda hf. á Patreksfirði fyrir síðastliðið starfsár, frá 1. september 2005 til 31. ágúst í ár, sýndi að reksturinn var mjög hagstæður. Samanlagðar rekstrartekjur fiskvinnslu og útgerðar voru 30% hærri en árið á undan og námu rúmum 1.000 milljónum króna. Afkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði var mun betri …

Tillaga að nýju deiliskipulagi frístundabyggðar og íbúðarhúsa á Bíldudal 20. nóvember 2006
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 07. nóvember 2006, að auglýsa skv. 1. mgr. 25. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð og íbúðarhús á Bíldudal, milli Gilsbakka og Hafnarbrautar.
Tillagan gerir ráð fyrir ellefu frístundahúsum fyrir ofan núverandi frístundahús og fjórum íbúðarhúsum við Dalbraut.

Myndir frá styrktartónleikunum 19. nóvember 2006
Styrktartónleikar fyrir Melódíur minninganna voru haldnir í sal FÍH fyrir stuttu síðan. Það var Bjarni þór Sigurðsson sem bar hita og þunga af skipulagningu tónleikanna sem tókust frábærlega. Gestir sem voru vel á annað hundrað skemmtu sér vel. Eftirtaldir listamenn komu fram á tónleikunum: Jón Kr. Ólafsson, Ragnar Bjarnason, André Bachmann, Gísli Ægir Ágústsson, Jóhanna Linnet, Anna Sigríður Helgadóttir, Garðar Guðmundsson, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og félagar úr Léttsveit Kvennakór Reykjavíkur.
Myndir af tónleikunum er hægt að skoða hér …

Eitt hundrað ára afmæli Bíldudalskirkju 16. nóvember 2006
Sunnudaginn 26. nóvember verður haldið upp á eitt hundrað ára afmæli Bíldudalskirkju.
Í tilefni afmælisins flytja hátíðarmessu Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands og sr. Sveinn Valgarðsson sóknarprestur Bíldudalssóknar. Margt gesta verður í tilefni afmælisins og má þar nefna að allir núlifandi prestar sem þjónað hafa í Bíldudalskirkju eru væntanlegir vestur.

9,2 km. vegarkafli á Vestfjarðavegi boðinn út 14. nóvember 2006
Vegagerðin hefur óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á 9,2 km kafla á Vestfjarðavegi (60), frá Kúalá vestan Skálaness að Eyrará í Kollafirði í Gufudalssveit. Um er að ræða 7,5 m breiðan veg með klæðingu. Verkinu skal að fullu lokið …


Vestfirðir ekki alkalt svæði 14. nóvember 2006
Lengi hafa Vestfirðir verið skilgreindir sem kalt svæði. Nú virðast Súðvíkingar eitthvað vera að snúa upp á þá „staðreynd“, enda því sveitarfélagi ekki alls varnað í áberandi sóknarbaráttu sinni í því afturskriðsástandi sem helst einkennir fjórðunginn. Nýverið hafa verið staðfestar allheitar niðurstöður úr tilraunaborunum í Álftafirði sem getur gagnast Súðvíkingum.

bb.is greinir nánar frá:
„Stór viðburður í sögu Súðvíkinga“ …

Bílddælsk tónlist í spænsku sveitaútvarpi 14. nóvember 2006
Sveitungum í spænska þorpinu Carbonero og nágrönnum gefst í vikunni tækifæri til að kynnast vestfirska tónlistarbænum Bíldudal í tali og tónum. Því er að þakka útvarpsþættinum Strengjað vegabréf á útvarpsstöðinni Carbonero Radio sem er í umsjón Bílddælingsins Jóns Sigurðar Eyjólfssonar en þátturinn er tileinkaður heimbænum þessa vikuna.
“Ég rek gróflega feril Jóns Kr. Ólafssonar og leik svo lög Bílddælinga sem öll fjalla um þorpið,” segir útvarpsmaðurinn. “Einnig segi ég sögur úr þorpinu og reyni að bregða upp myndum af því fyrir íbúana hér sem sumir hverjir hafa ekki séð sjó á ævinni.”

Melódíur minninganna - Styrktartónleikar 5. nóvember 2006
Fimmtudagskvöldið 9. nóvember n.k. verða haldnir styrktartónleikar fyrir tónlistarsafnið Melódíur minninganna. Tónleikarnir fara fram í FÍH salnum Rauðagerði 27, Reykjavík og hefjast stundvíslega kl. 20:00.
Tónlistarsafnið Melódíur minninganna er starfrækt af Jóni Kr. Ólafssyni söngvara á Bíldudal en hann hefur með miklum dugnaði komið á fót tónlistarsafni, sem geymir minningar um tónlistarmenn, jafnt lífs og liðna.

Deiliskipulag frístundasvæðis 3. nóvember 2006
Skipulags- og bygginganefnd hefur fyrir sitt leiti samþykkt nýtt deiliskipulag á Bíldudal.
Svæðið sem um ræðir er milli Gilsbakka og Hafnarbrautar. Á 106. fundi nefndarinnar voru lagðar fram teikningar af umræddu svæði. Tillaga að deiliskipulagi borið upp og samþykkt samhljóða. Bæjarstjóra var falið að auglýsa deiliskipulagið.

Ísafjörð frekar en Grundarfjörð … 3. nóvember 2006
Í-listinn [Ísafjarðarbæ]: Framhaldskóladeild á suðurfjörðunum ætti að starfa í tengslum við MÍ.
Framhaldskóladeild verður komið á fót á Patreksfirði og mun Fjölbrautaskóli Snæfellinga hafa umsjón með náminu.
Fulltrúar Í-listans í Ísafjarðarbæ vilja að ráðherrar beiti sér fyrir að bæta úr samgöngumálum milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða og segja að …

Hænufetin telja líka … 31. október 2006
Á textavarpi RUV 27. okt. mátti sjá að að kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal hefji ekki vinnslu fyrr en í upphafi næsta árs. Einnig að vélakostur sé nær allur kominn á staðinn og byrjað verði á framleiðslu áburðarkalks fyrir Bretlandsmarkað.
Þá segir að mikil eftirspurn …

Kalkþörungafélagið eignast Svalborgina 31. október 2006
Íslenska kalkþörungafélagið hefur eignast Svalborgina og tekur lóð til leigu.
Aðdragandi þess að Ík eignast Svalborgina er, „að þegar framkvæmdir hófust á Hafnarteigi 4, Bíldudal, á lóð Íslenska kalkþörungafélagsins á haustmánuðum 2005 var framkvæmt RB plötupróf. Álagsprófið stóðst ekki …

Framhaldsskóladeild komið á á Patreksfirði næsta haust 27. október 2006
Samþykkt var í dag tillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, þess efnis að gerð verði tilraun um rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði fyrir nemendur á fyrsta og öðru ári í framhaldsskóla. Deildin verður rekin í nánu samstarfi eða undir stjórn Fjölbrautaskóla Snæfellinga og stuðst við þá reynslu …

Vopn haugbúans eru frá 10. öld 4. október 2006
Adolf Friðriksson fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun segir að vopn haugbúans sem fannst í Hringsdal í Arnarfirði í sumar séu frá lokum 10. aldar. Adolf segir að kumlstæðið á sjávarbökkum falli alveg að niðurstöðum fræðinga um staðfræði kumla í landinu. Frá þessu var greint í fréttum svæðisútvarpsins. Beinagrindin sem lá í kumlinu hefur ekki verið aldursgreind enn en það er næsta mál á dagskrá.

Haustfagnaður 7. október 19. september 2006
Haustfagnaður Arnfirðingafélagsins verður haldinn í Húnabúð Skeifunni 11, laugardaginn 7. október. Húsið opnar kl. 21.30. Stuðtapparnir Matti og Viðar leika fyrir dansi. Aldurstakmark 18 ár.
Tilraunaborun lofar góðu í Arnarfirði 17. september 2006
Að undanförnu hefur staðið yfir borun rannsóknarhola við fyrirhugaðan jarðgangnamunna í Arnarfirði vegna komandi jarðgangna á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Búið er að bora um 200 m kjarnaborun, en bora á 420 m kjarnaborun og 100 m borun í laust efni með fóðrun. Í ljós hefur komið …

Ferð í Geirþjófsfjörð á Gönguhátíð 12. september 2006
Það væri synd ef ekkert væri getið um frábæra ferð sem farin var í Geirþjófsfjörð í tengslum við Gönguhátíð í Vesturbyggð og Tálknafirði í lok júlí 2006. Farið var með Jóni Halldórssyni á Brynjari BA 128 og siglt í Geirþjófsfjörð í blanka logni, sól og sléttum sjó.
Vegir hættulegir vegna bleytu 11. september 2006
Magnús Hauksson og ellefu ára gömul dóttir hans, Salome Katrín, sluppu með skrekkinn á laugardag þegar flutningabíll sem Magnús ók valt í Trostansfirði í Arnarfirði. Vegkantur gaf sig undan þunga bílsins en Magnús var að flytja fjórtán tonn af frystri loðnu að fiskeldiskvíum í Arnarfirði. Farmurinn kastaðist allur af bílnum sem er mikið skemmdur eftir veltuna.
Magnús segist hafa áttað sig á hvað verða vildi og reynt allt sem hann gat til að halda bílnum á veginum þegar vegkanturinn gaf sig. Hann náði að hægja ferðina og afstýra því að verr færi. „Ferðin var lítil sem engin þegar bíllinn …

Veittu Gönguhátíðinni styrk 11. september 2006
Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps samþykkti á dögunum að veita Gönguhátíð í Vesturbyggð og Tálknafirði styrk upp á 25 þúsund krónur. Hátíðin, sem fór fram í sumar, er unnin í samstarfi Arnfirðingafélagsins og tímaritsins Útiveru. Á hátíðinni...
Nýr bæjarstjóri í Vesturbyggð 31. ágúst 2006
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur samþykkt ráðningarsamning við Ragnar Jörundsson um að hann verði bæjarstjóri sveitarfélagsins til ársins 2010 eða út kjörtímabilið. Ráðningin var samþykkt með öllum atkvæðum meirihlutans, en minnihlutinn sat hjá. Rúmur mánuður er síðan ákveðið var að ganga til samninga við Ragnar. Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum …

Líst vel á að bein Hrings ferði flutt aftur í dalinn 21. ágúst 2006
Adolf Friðriksson, forstöðumaður Fornleifastofnunar Íslands, segir að sér lítist vel á hugmyndir Hilmars Einarssonar, landeiganda í Hringsdal, um að fá það sem talið er að séu líkamsleifar Hrings í Hringsdal, sem grafnar voru upp í síðustu viku, aftur í dalinn. Áður en það væri framkvæmanlegt þyrfti þó að uppfylla fjölda krafna um …

Gröf í Hringsdal, kuml frá 10. öld 17. ágúst 2006
Í fyrradag fannst spjótsoddur við brún kumls í Hringsdal í Arnarfirði. Fornleifafræðingarnir Adolf Friðriksson og Eiríkur Jónsson fundu svo í gær beinagrind sem þykir ótrúlega heil, en hún er af hávöxnum ungum manni sem hefur tekið allt sitt haugfé, alvæpni, spjót, sverð og skjöld til hinstu hvíldar. Frá þessu segir á bildudalur.is. Þykir mönnum greinilegt að kuml þetta hefur ekki verið rænt eins og víða …

Nýr björgunarbátur tilbúinn í Bretlandi 17. ágúst 2006
Í dag var formlega gengið frá því á milli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og RNLI (konunglega breska björgunarfélagið) um kaup á björgunarskipi sem fer á sunnanverða Vestfirði.

Skipið er tilbúið til afhendingar í Bretlandi og kemur Samskip til með að flytja skipið endurgjaldslaust eins og síðustu 3 skip sem komið hafa til …

Fiskverkunarhúsi breytt í sumarhús fyrir sjóstangaveiðimenn? 16. ágúst 2006
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt tillögu Jóns B. G. Jónssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, um að gerð verði athugun á því hvort að fiskverkunarhús sem finna má í Vatnskróki og er í eigu Vesturbyggðar, myndi henta sem sumarhús fyrir stangveiðimenn á vegum sjóstangveiðifyrirtækisins Fjord Fishing, ef gerðar yrðu …

Hreppsnefnd Reykhólahrepps gagnrýnir Skipulagsstofnun 15. ágúst 2006
Hreppsnefnd Reykhólahrepps telur að Skipulagsstofnun meti verndun birkis meira en mannslíf í umferðinni. Þetta kemur fram í athugasemd sem hreppsnefndin hefur sent umhverfisráðuneytinu vegna umsagna Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar og fleiri við stjórnsýslukæru hreppsins á úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar nr. 60 á milli Bjarkarlundar og …

Þýskir sjálfboðaliðar vinna að viðgerðum í Selárdal 15. ágúst 2006
Hópur þýskra sjálfboðaliða er nú í Selárdal á vegum Félags um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal að vinna að viðgerðum á listaverkum undir leiðsögn Gerhards König. Að sögn Ólafs Engilbertssonar hjá félaginu kom hópurinn þangað fyrir viku og verður fram á laugardag. „Þetta fólk kemur hingað í gegnum stofnun sem …

Rækju- og skelbátar í Arnarfirði fá bætur vegna samdráttar 4. ágúst 2006
Bætur til þeirra báta sem orðið hafa fyrir skerðingum á veiðiheimildum í hörpudiski og innfjarðarækju verða óbreyttar í þorskígildum reiknað á næsta fiskveiðiári, að öðru leyti en því að rækju og skelbátar í Arnarfirði fá nú bætur vegna verulegs samdráttar í rækjuveiðum á síðasta ári. Þetta er í samræmi við …

Gönguhátíð í Vesturbyggð 20. júlí 2006
Dagana 27. – 30. júlí verður haldin gönguhátíð í Vesturbyggð, á sunnanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt okkar vitneskju er þetta eina hátíðin sem haldin er hér á landi með gönguþema.
Á hátíðinni fara saman gönguleiðir með leiðsögn og ýmsir viðburðir og uppákomur, s.s. sögumenn og leikþættir, safnaheimsóknir og messa í gamalli sveitakirkju.

Búskap hætt á Hrafnseyri við Arnarfjörð 20. júlí 2006
Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, er komin í röð eyðijarða. Þetta fyrrum höfuðból var mannlaust í vetur, í fyrsta sinn frá landnámi. Þar er þó reynt að halda uppi öflugri starfsemi um sumartímann, en það nýjasta er að bjóða upp á háskólanám. Vegleg húsakynni standa á Hrafnseyri.

Vesturbyggð styrkir unga körfuknattleiksmenn 14. júlí 2006
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur ákveðið að styrkja fulltrúa sveitarfélagsins í Evrópukeppni í körfuknattleik. Á fundi ráðsins á þriðjudag var samþykkt að styrkja þau Unni Töru Jónsdóttur og Víking Sindra Ólafsson til þátttöku í Evrópukeppni unglingalandsliða í körfuknattleik sem fram fer nú síðar í mánuðinum um fjárhæð …

Sýning á Rauðhettu 2. júlí kl. 14.00 30. júní 2006
Leikfélagið Baldur frumsýndi síðastliðin laugardag leikritið Rauðhettu eftir Jewgeni Schwarz í þýðingu Stefáns Baldurssonar í leikstjórn Þrastar Leó Gunnarssonar. Vegan frábærra undirtekta...
Það verður fjör á Bíldó um helgina 20. júní 2006
Um næstu helgi verður mikið fjör á Bíldudal en Leikfélagið, Kaupfélagið og Vegamót verða með dagskrá þessa helgi. Leikfélagið frumsýnir barnaleikritið Rauðhetta og úlfurinn, Vegamót heldur upp á 20 ára afmæli og Kaupfélagið verður með kráarstemningu á föstudagskvöldið þar sem Viðar og Matti leika.
17. júní á Bíldudal 19. júní 2006
Kvenfélagið Framsókn hefur staðið fyrir 17. júní hátíðahöldum á Bíldudal í nær 40 ár. Hátíðarhöldin í ár voru með hefðbundnu sniði. Bryndís Hreinsdóttir var fjallkonan og þótti hún framúrskarandi í því hlutverki. Boðið var uppá grillaðar pylsur og flutt voru tónlistaratriði. Kvenfélagið færði Bíldudalskirkju að gjöf kr. 300.000 en kirkjan verður 100 ára í ár og miklar endurbætur eru hafnar á henni. Veðrið lék við hátíðargesti en um leið og hátíðarhöldum lauk byrjaði að rigna.

Baugur styrkir Baldur 18. júní 2006
Í dag var úthlutað úr Styrktarsjóði Baugs group. Leikfélagið Baldur fékk úthlutað kr. 500.000 til uppsetningar á barnaleikritinu Rauðhetta og úlfurinn sem frumsýnt verður nú í júní. Alls var úthlutað úr styrktarsjóðnum 40 milljónum króna til ýmissa verkefna vítt og breitt um landið.

Kómedíuhúsið reynir við Íslandsmet í leikhúsmaraþoni 6. júní 2006
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði ætlar að standa fyrir leikhúsmaraþoni á fimmtudag og verður þá einleikurinn Gísli Súrsson fluttur í einn sólarhring. Leikurinn er um klukkustunda langur og verður tekið stundarfjórðungs langt hlé á milli sýninga. Gísli Súrsson verður...
Yfirlýsing frá óháðum 2. júní 2006
Óháðir, sem buðu fram með sjálfstæðismönnum í sveitarstjórnarkosningunum á dögunum hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: “Fyrir hönd óháðra, er buðu fram í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum þann 27. maí s.l., vil ég senda árnaðaróskir til Samstöðu með frækinn sigur um leið og frambjóðendum er þökkuð drengileg og málefnaleg barátta. Óska ég nýjum meirihluta í bæjarstjórn velfarnaðar í störfum sínum. Sjálfstæðismönnum færi ég kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf og jafnframt öllum þeim er lögðu á sig ómælda og óeigingjarna vinnu fyrir D-listann í kosningabaráttunni. Sérstökum ......

Stálið rís á nýhöfninni 25. maí 2006
Fæst mannanna verk eru óumdeild. Svo var ekki heldur í aðdraganda kalkþörungaverksmiðjubyggingar á Bíldudal. Ýmist leit fólk til þessa með velþóknun, aðrir með vanþóknun og enn aðrir vatrú.
Nú er svo komið …

Sameiginlegir framboðsfundir 24. maí 2006
Sameiginlegir framboðsfundir framboðanna
D – lista Sjálfstæðisflokks og óháðra og S – lista Samstöðu
Verða sem hér segir:
Bíldudal: Baldurshaga miðvikudag 24. maí
Patreksfirði: Félagsheimilinu fimmtudag 25. maí
Fundirnir hefjast allir kl. 20:30


Fundur um atvinnumál á Bíldudal 22. maí 2006
Fundur um atvinnumál á Bíldudal var haldinn í gær. Þar var farið yfir stöðuna í atvinnumálum staðarins en eins og alþjóð veit þá hefur engin atvinna verið á Bíldudal síðan fiskvinnslu var hætt þar síðasta sumar. Í máli bæjarstjóra .........

Sumarhús Arnfirðingafélagsins 22. maí 2006
Nú styttist í að meðlimir Arnfirðingafélagsins geti leigt sumarhús á Bíldudal og notið þar verunnar og veðurblíðu í faðmi fjallanna. Húsið, Grænabakki 3, mun verða leigt út viku í senn, frá 1. júní, til þeirra félagsmanna sem greitt hafa árgjald félagsins sem ætlunin er að taka upp á þessu ári. Um síðustu helgi...

Draumur hins djarfa manns 17. maí 2006
Sjávarútvegsráðuneytið minnir á ráðstefnuna Draumur hins djarfa manns sem haldin verður í Háskólasetrinu á Ísafirði laugardaginn 20. maí kl. 11.00-15.00. Sjávarúvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, setur ráðstefnuna og fluttir vera fyrirlestrar um sjómenn, ímynd þeirra og menningu. Boðið...

Fjord fishing á Bíldudal 16. maí 2006
Vesturbyggð auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem taka vilja þátt í uppbyggingu á Bíldudal og Patreksfirði í tengslum við Fjord fishing verkefnið. Hugmyndin er að standa að stofnun félags, eða notast við félag sem til er fyrir, sem byggir og rekur hús til útleigu fyrir erlenda og innlenda sjóstangveiðimenn.


D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra kominn fram 6. maí 2006
D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra, hefur farið með meirihluta í bæjarstjórn Vesturbyggðar á þessu kjörtímabili. Sjálfstæðismenn og óháðir hafa ákveðið að halda þessu farsæla samstarfi áfram og bjóða fram með sama hætti í komandi bæjarstjórnarkosningum.
Framboðslista Sjálfstæðisflokksins og ........

Sólarkaffi í Perlunni! 4. maí 2006
Fyrir nokkru var greint frá því hér á arnfirðing að hjónin Jón Hákon Ágústsson og Guðbjörg J. Theódórs væru að hefja vinnslu og pökkun á kaffi á Bíldudal og var efnt til samkeppni um nafn á fyrirtæki þeirra. Vinningstillagan var nafnið Sólarkaffi og er höfundur þess Pétur Bjarnason. Kynning verður..
Skipsflak uppgötvað í Arnarfirði 3. maí 2006
Skipsflak uppgötvaðist á botni Arnarfjarðar 28. apríl sl. Árni Friðriksson RE-200 hefur verið að mynda veiðarfæri í sjó með neðansjávarmyndavél að undanförnu og voru tekin nokkur tog í Arnarfirði og komu menn þá auga á skipsflakið. Það er frekar lítið að því er talið og greinilegt að það hefur legið lengi á botninum. Ekki var vitað að flak væri á þessum stað en uppi eru getgátur um að það sé af seglskútunni Gyðu BA sem

Styrktarsjóður til eflingar leiklistarmenntun 1. maí 2006
Styrktarsjóður til eflingar leiklistarmenntun á Bíldudal var stofnaður á dögunum. Sjóðurinn fékk nafnið HANNESÖRNÁGÚST eftir þríeykinu Hannesi Friðriksyni, Erni og Ágústi Gíslasonum sem hafa verið forkólfar í leiklistinni á Bíldudal í áratugi. HANNESÖRNÁGÚST styrktarsjóður mun úthluta styrkjum einu sinni á ári. Úthlutunin fer fram 1. desember á árshátíð Leikfélagsins Baldurs á Bíldudal. Reglur sjóðsins .....

Listi Bæjarmálafélagsins Samstöðu kominn fram 1. maí 2006
Nú styttist í kosningar en listar framboða til bæjarstjórnarkosningar í Vesturbyggð hafa látið standa á sér. Bæjarmálafélagið Samstaða er fyrst til að opinbera sinn lista. Tillaga uppstillingarnefndar var borin upp á fundi hjá Samstöðu á laugardaginn 29. apríl og samþykkt samhljóða. Eftirtaldir skipa lista ..........

Hús, tól og tæki bíða skips 28. apríl 2006
Á hafnarbakkanum í Flixborough á Englandi bíða hús tól og tæki flutnings. Áfangastaður þess er Bíldudalur og er allt að því eitt stykki verksmiðja. Að sögn Guðmundar Valgeirs Magnússonar verksmiðjustjóra kalkþörungaverksmiðjunnar sem reist verður á Bíldudal, mun fyrrnefndum farmi, sem samanstendur af efniviði verksmiðjuhússins …

video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Arnfirðingafélagið leitar eftir húsgögnum 28. apríl 2006
Arnfirðingafélagið hefur fest sér hús á Bíldudal sem býðst félagsmönnum til leigu í sumar. Í húsið vantar okkur allt sem í sumarhúsi þarf að vera og leitum við því til félagsmanna um aðstoð. Búið er að útbúa lista yfir þá hluti sem okkur vanhagar um og viljum við því biða velunnara félagsins að athuga hvort eitthvað af því sem er á listanum leynist ekki í geymslunni. Þeir sem ....


video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
Tíðis opnar nýtt myndasafn 28. apríl 2006
Tíðis hefur uppfært myndasafn sitt en það er nú knúið af hinu útbreidda ,,Gallery 2" vefkerfi eftir Bharat Mediratta. Tilgangur uppfærslunnar er að auka möguleika safnsins sem og auðvelda alla leit í myndasafninu en með í safninu er öflug leitarvél sem gerir notendum myndavefsins auðveldara fyrir þegar finna þarf myndir í myndasafninu. …

Spyr hvort ráðherra ætli að beita sér í atvinnumálum Bílddælinga 26. apríl 2006
Pétur Bjarnason, sem nú situr á þingi í fjarveru Guðjóns Arnars Kristjánssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, lagði fram fyrirspurn um atvinnuástand á Bíldudal á dögunum. Fyrirspurn Péturs var til forsætisráðherra og snerti það hvort ráðherrann ætlaði að beita sér í málefnum Bílddælinga og hvort hann væri hlynntur sértækum aðgerðum til þess að bæta ástandið. Þá spurði Pétur hvort …

Dimmalimm komin heim 26. apríl 2006
Einleikur Kómedíuleikhússins Dimmalimm verður sýndur á sunnanverðum Vestfjörðum á miðvikudag og fimmtudag. Má segja að prinsessan sé nú kominn heim því höfudur ævintýrisins er Bílddælingurinn Muggur og sveitungi hans Elfar Logi leikur og semur leikgerðina. …

Furðufataball í Kaupfélaginu 24. apríl 2006
Um páskahelgina mætti fjölmenni í Kaupfélagið í skrautlegum búningum. Það var Leikfélagið Baldur og Kaupfélagið sem stóðu fyrir uppákomunni sem heppnaðist mjög vel. Veitt voru verðlaun...
Fimmtugur á Laugabóli 21. apríl 2006
Þeir hafa verið margir athafnamennirnir við Arnarfjörð í gegn um tíðina. Misjafnt er þó líklega hvaða mark þeir setja á söguna. Erfitt getur líka stundum reynst að setja fingur á tímamót hjá slíku fólki, þó sér í lagi á líðandi stundu. Einn núlifandi athafnamanna í Arnarfirði er ekki mikið áberandi á Bíldudal, enda …

Baldur siglir á ný 20. apríl 2006